Útrásarvíkingur í utanlandsreisu 6. janúar 2009 19:19
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings, er nú á leið til Suðurheimskautsins, ásamt hópi Íslendinga. Undirbúningur var mikill, en ferðin kostar um 3,5 milljón króna á mann. Samkvæmt heimildum fréttastofu fer hópurinn ásamt tveimur leiðsögumönnum frá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum, þeim Ívari Erni Svavarssyni og Ívari Finnbogasyni. Leiðangursmenn hafa undirbúið ferðina í nokkurn tíma, en aðstæður á Suðurheimskautinu eru afar erfiðar. Hópurinn er nú staddur í Santíago í Chile, en flýgur frá Punta Arenas, þegar veður leyfir, til Patriot Hills, en þar eru búðir fyrir göngufólk. Stefnan verður síðan sett á Vinson-fjall, hæsta tind Suðurheimskautsins. Ferðin tekur að lágmarki 2 vikur. Hún gæti þó lengst í annan endann, en oft þarf fólk að bíða til að komast á pólinn eða frá honum vegna veðurs. Samkvæmt upplýsingum frá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum kostar ferð sem þessi þrjár til þrjár og hálfa milljón króna. Fleiri Íslendingar eru á þessum slóðum, en tveir starfsmenn Arctic Trucks, hafa verið með sérútbúna Toyota Hilux bíla á Suðurpólnum, sem ætlaðir eru til að styðja við keppendur og sjónvarpsfólk frá BBC í afar erfiðri gönguskíðakeppni sem er nýhafin. Aðstæður eru gríðarlega erfiðar. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 kom fram að Ágúst Guðmundsson, kenndur við Bakkavör, væri í för með hópnum. Samkvæmt upplýsingum frá Snorra Guðmundssyni upplýsingafulltrúa hjá Bakkavör er Ágúst hins vegar staddur í Bretlandi og var viðstaddur ráðstefnu í Oxford í dag. Beðist er velvirðingar á þessari rangfærslu.
Mest lesið Útför Megasar Lífið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið Sam Smith trúlofað Lífið Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Kíkti í kaffi til kanslarans Lífið Fleiri fréttir Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Sjá meira