Innlent

Skattaáform ríkisstjórnarinnar harðlega gagnrýnd

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ.
Engin sátt er í augsýni í deilu aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda vegna stöðugleikasáttmálans. Skattaáform ríkisstjórnarinnar eru harðlega gagnrýnd en ASÍ vill að persónuafsláttur verði hækkaður um tæpar 7 þúsund krónur.

Ríkisstjórnin fundaði með aðilum vinnumarkaðarins og fulltrúm sveitarfélaganna tvisvar um helgina. Lítillar bjartsýnni gætti í máli forystumanna Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands eftir fund í gær.Ekki er útilokað að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði verði sagt upp á morgun náist ekki sátt í málinu fyrir þann tíma.

Aðilar vinnumarkaðarins telja að ríkisstjórnin hafi ekki staðið við sinn hluta stöðugleikasáttmálans sem undirritaður var fyrr á þessu ári. Benda þeir meðal annars á að stýrivextir eru ekki komnir niður í eins stafs tölu og þá hafi ýmsar stóriðjuframkvæmdir tafist.

Boðaðar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar hafa einnig verið gagnrýndar en Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að persónuafsláttur þurfi að hækka um allt að 6.600 krónur til að halda í við verðbólgu.

„Við höfum viljað standa vörð um það sem við teljum að hafi verið fyrirheit gagnvart launafólk, varðandi hækkun á persónuafslætti, bæði verðtryggingu hans sem og sérstaka hækkun á okkar kjarasamningi. Það er greinilega allt í uppnámi. það er líka ljóst að við höfum tekið undir með atvinnulífinu að áform um nýja skatta á atvinnulífið megi ekki draga úr áformum um fjárfestingar en við höfum líka sagt að atvinnulífið verði að finna aðrar leiðir til að bera þá skatta. Þannig sameinumst við með atvinnurekendum að leggja fram ákveðnar tillögur í því. Það felur í sér þá breytingu að vinnumarkaðurinn mun bera ábyrgð á atvinnuleysinu með því að fjármagna það að fullu. það léttir verulega á rílkissjóði," sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, að loknum fundi með ráðherrum ríkisstjórnarinnar í gær.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir það vera lykilatriði að lækka stýrivextir til að tryggja fjárfestingar í atvinnulífinu.

„Við þurfum að ná saman í grundvallaratriðum í skattamálunum. Við þurfum að sjá til lands í því að fjárfestingar verði með eðlilegum hætti á næsta ári. Þá snýst málið um Helguvík, það snýst um sjávarútveginn og það snýst um vextina. Við þurfum að ná þeim niður. Gagnvart sjávarútveginum þá þarf hann að fá starfsfrið og geta farið að fjárfesta á nýjan, það er svo margt af þessum toga sem þarf að fara í gegnum," sagði Vilhjálmur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×