Erlent

Úlfaþytur í Írönum eftir kosningar

Frá því fyrir kosningar, stuðningsmaður Mousavis á götu.
Frá því fyrir kosningar, stuðningsmaður Mousavis á götu.

Írönsk stjórnvöld hafa bannað mótmæli stuðningsmanna Mir Hosseins Mousavi en hann tapaði fyrir sitjandi forseta landsins, Mahmoud Ahmadinedjad, í kosningum fyrir helgi. Vaxandi ólgu virðist gæta meðal landsmanna en öruggur sigur forsetans í fyrstu umferð kom mörgum á óvart sem höfðu búist við jafnari keppni. Mousavi hefur krafist þess að kosningin verði ógilt og að kosið verði að nýju og hefur hann ýjað að því að yfirvöld hafi haft rangt við til þess að halda Ahmadinejad í embætti.

Klerkaráðið í Íran hefur fengið tvær formlegar kvartanir frá tveimur frambjóðendum, þeim Mir Hossein Mousavi og Mohsen Rezaie sem er fyrrverandi foringi Byltingavarðanna er varða framvkæmd kosninganna. Ráðið ætlar að fara yfir kvartanir tvímenninganna og mun úrskurður verða felldur innan tíu daga.

Ahmadinejad hefur hinsvegar þvertekið fyrir að um svindl hafi verið að ræða og æðstiklerkurinn Ayatollah Ali Khamenei hefur hvatt Írana opinberlega til þess að styðja við bakið á Ahmadinejad.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×