Sprautuðu lakkeyði á bíla forstjóra OR 13. ágúst 2009 05:30 Meðal fyrstu skemmdarverkanna var þegar rauðri málningu var slett á hús Hannesar Smárasonar við Fjölnisveg í apríl. Mynd/Pjetur
Milljónatjón varð á húsi og bílum Hjörleifs H. Kvaran, forstjóra Orkuveitunnar, þegar aðgerðasinnar unnu skemmdarverk á heimili hans aðfaranótt mánudags. Svo virðist sem þeir séu farnir að færa sig upp á skaftið, því þeir létu sér ekki nægja að skvetta málningu sem hægt er að spúla burt, heldur voru bílarnir líka eyðilagðir með lakkeyði. Lögregla hefur alls þrettán skemmdarverk af þessu tagi nú til rannsóknar, en aðgerðasinnar hafa verið duglegir að láta í ljós óánægju sína með fólk úr fjármála- og orkugeiranum og meðal annars herjað á heimili þess. Ekkert málanna er þó upplýst enn. Hingað til hefur rauðri málningu ítrekað verið slett á hús fólks úr fjármálalífinu en grænni málningu eða skyri slett á heimili fólks eða aðra staði sem tengjast orkuiðnaði. Skemmdirnar á heimili Hjörleifs skera sig þó úr, því málningin sem notuð var á heimili Orkuveituforstjórans var rauð. Heima hjá Hjörleifi var auk þess sprautað lakkeyði á bíla hans. „Þeir fóru skipulega yfir báða bílana og ötuðu hvern einasta flöt með þessu efni," segir Hjörleifur. „Þetta veldur því að lakkið hleypur upp á báðum bílunum, það verður pússa þá upp og heilsprauta þá." Unnt er að þrífa málninguna af húsinu við illan leik, en tréverkið á og við húsið er illa farið. Tjónið segir Hjörleifur hlaupa á milljónum. Lögregla segir ekki ólíklegt að sama fólk standi að baki að minnsta kosti einhverjum skemmdar-verkanna. Sami hópur, sem kallar sig A.S.Ö., hefur lýst á hendur sér skemmdarverkum á heimilum forstjóra Landsvirkjunar og Alcan þar sem grænni málningu var einnig skvett. Enginn hefur hins vegar lýst yfir ábyrgð á skemmdunum heima hjá Hjörleifi. „Mér finnst það helvíti lágkúrulegt og aumt að þeir sem að þessu standa skuli ekki þora að stíga fram og gangast við þessu hryðjuverki," segir hann. Þetta bitni ekki bara á honum, heldur einnig fjölskyldu hans og börnum. „Ekki tengist ég útrás á nokkurn hátt," bætir hann við.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Sjá meira