Helgi Sig: Allra erfiðasta tímabilið á ferlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. september 2009 18:47 Helgi Sigurðsson skoraði flest mörk fyrir Val í sumar eða sjö. Mynd/Valli
Helgi Sigurðsson og aðrir Valsmenn náðu ekki að vinna sigur í síðustu sjö heimaleikjum sínum á tímabilinu og hann gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftir 2-5 tap á Vodafone-vellinum á móti KR í lokaumferð Pepsi-deildar karla í dag. „Við vorum langt um frá nógu góðir í fyrri hálfleik og vorum bara ekki með. Í seinni hálfleik komum við sterkir út og náðum að minnka þetta í 3-2 og þá fannst ég við hafa tök á þeim. Svo fáum við á okkur ódýrt rautt spjald sem gerir þetta okkur enn þá erfiðara fyrir. Eftir að þeir skoruðu fjórða markið þá var þetta orðið mjög erfitt," sagði Helgi Sigurðsson eftir leikinn. „Ég var sáttur við seinni hálfleikin hjá okkur miðað við allt og allt en fyrri hálfleikurinn var ömurlegur. Það er bara eins og tímabilið okkar er búið að vera í hnotskurn. Við höfum ekki náð nógu löngum köflum góðum. Við höfum átt góða kafla inn á milli en það hefur sjaldan verið heill leikur sem hefur verið í góðu lagi," sagði Helgi sem viðurkenndi að hafa ekki gengið í gegnum erfiðara tímabil á sínum langa ferli. Valsliðið vann sem dæmi aðeins einn deildarleik frá 22. júní. „Þetta er örugglega eitt það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum á ferlinum. Maður hefur lent í miklu mótbyr um ævina í fótboltanum þar sem hlutirnir hafa ekki gengið nógu vel. Ég held að þetta tímabil sé það sem hefur verið það allra erfiðasta fyrir margar sakir," segir Helgi sem hrósaði þó móralnum í liðinu og að menn hafi reynt að gera sitt besta. "Staðan lýgur samt ekki við erum í 8. sæti sem er alls ekki nógu gott fyrir Val," sagði Helgi sem var ekki að kveðja Valsmenn í gær. „Það verður að koma í ljós hvort þetta var síðasti leikurinn fyrir Val. Ég á eitt ár eftir og ég er búinn að vera markahæstur hjá liðinu þrjú ár í röð með mark í öðrum hverjum leik. Ef Valur vill skoða það að láta mig fara þá verður það bara koma í ljós. Ég hef ekkert spáð í það sjálfur því ég er bara Valsmaður í dag og á eitt ár eftir af mínum samningi. Ég býst við að vera hérna áfram eins og staðan er núna," sagði Helgi að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Enski boltinn Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti Fleiri fréttir Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Sjá meira