Innlent

Landeigendur óhressir með landbúnaðarráðherra

Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra.
Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra.
Stjórn Landssamtaka landeigenda á Íslandi telur það ámælisvert að Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra skipi vinnuhóp um endurskoðun jarða- og ábúðarlaga án aðildar samtakanna. Í tilkynningu frá stjórninni segir að það hljóti að skapa tortryggni um markmið boðaðrar endurskoðunar laganna að hagmunasamtök landeigenda séu þannig sniðgengin þegar skipaður er vinnuhópur vegna málsins og ekkert við þau talað um hvað vaki nákvæmlega fyrir stjórnvöldum.

„Landssamtök landeigenda sjá enga ástæðu til að breyta gildandi jarða- og ábúðarlögum og vilja að viðskiptafrelsi ríki áfram á markaði fyrir bújarðir líkt og með fasteignir yfirleitt," segir ennfremur auk þess sem samtökin vara eindregið við að hömlur verði settar á viðskipti með bújarðir sem rýrt gætu verðgildi þeirra. Slíkt væri að mati stjórnarinnar afturhvarf til fortíðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×