Forseti ASÍ: Ríkisstjórnin brýtur samninga 14. desember 2009 14:13 Mynd/Pjetur
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir ríkisstjórnina brjóta gegn ákvæðum gildandi kjarasamninga og svíkja þar með yfirlýsingar fyrri ríkisstjórna. Gylfi segir að samstarf launþegahreyfingarinnar við ríkisstjórnina sé í uppnámi. Gylfi segir í pistli á vef ASÍ að ríkisstjórnin ætli sér einhliða að fella niður sérstaka umsamda 3000 króna hækkun persónuafsláttar í ársbyrjun 2011 án nokkurs samráðs eða samtals við sinn viðsemjanda. ASÍ samdi við ríkisstjórn Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um sérstaka hækkun persónuafsláttar, sem koma myndi til framkvæmda í þremur áföngum 2009, 2010 og 2011. „Var þetta hluti af gildandi kjarasamningum til þess að treysta stöðu þeirra tekjulægstu. Það er með ólíkindum að verða vitni að því, að stjórnvöld telja sig ekkert bundin af þeim samningum sem þau gera við verkalýðshreyfinguna." Gylfi segir að í því samráði sem fram fór við undirbúning tekjulagafrumvarps ríkisstjórnarinnar hafi ASÍ lagt áherslu á þrennt. Í fyrsta lagi að tekið yrði upp lægra þrep á lægri tekjur, í öðru lagi að hægt yrði að verja tímabundna frestun á verðtryggingarákvæði persónuafsláttar um ein áramót vegna upptöku lægra skatthlutfalls á lægri tekjur og í þriðja lagi að samkomulag ASÍ við gerð kjarasamninganna í febrúar 2008 um sérstaka 7000 króna hækkun persónuafsláttar í þremur áföngum héldi gildi sínu. Langtímaáhrifin af framgöngu ríkisstjórnarinnar er alvarleg, að mati Gylfi. „Í raun er verið að undirstrika að það sé mjög varasamt fyrir launafólk að treysta á aðkomu stjórnvalda við gerð kjarasamninga - slíkt sé stundarfyrirbrigði sem hafi lítið langtímagildi." Gylfi segir að þetta sé mikið hættuspor. „Með þessu er ekki einungis verið að brjóta áratuga langa hefði fyrir nánu þríhliða samstarfi um mótun og viðhald stöðuleika heldur hitt að áframhaldandi samstarf er sett í uppnám við aðstæður þar sem fyrirsjáanlegt er að það mun einmitt reyna á slíkt samstarf á næstu árum á meðan við glímum við afleiðingar fjármálakreppunnar." Pistil Gylfa er hægt að lesa hér.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Innlent Fleiri fréttir Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Sjá meira