Olíuleitartæki reyndust 35 tonn af vopnum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 14. desember 2009 08:27 Flugvélin á flugvellinum í Bangkok.
Fimm manna áhöfn norðurkóreskrar flutningavélar er í haldi lögreglunnar í Bangkok í Taílandi eftir að í ljós kom að vélin flutti 35 tonn af vopnabúnaði. Vélin var á leið frá Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu, en skráð í Georgíu. Hún millilenti í Bangkok á föstudaginn og fóru taílenskir löggæslumenn þá um borð og leituðu í vélinni en þeim hafði borist ábending frá bandarískum leyniþjónustumönnum um að farmur vélarinnar væri ekki olíuleitarbúnaður eins og fram kom á farmskrá. Þetta reyndist á rökum reist, í stað tækja til olíuleitar fundu eftirlitsmennirnir 35 tonn af sprengjuvörpum, flugskeytum, handsprengjum og öðrum vopnabúnaði. Áhöfnin yppti öxlum og sagðist ekki hafa haft neina hugmynd um hvað væri um borð í vélinni en næsti áfangastaður þeirra hefði átt að vera Sri Lanka. Bandarísku leyniþjónustuna grunar þó annað og telur að vopnasendingin hafi verið á leið til Írans þar sem Norður-Kóreumenn ætluðu sér að selja vopnin til að fjármagna kjarnorkuáætlun sína en önnur vopnasending frá Norður-Kóreu, sem hald var lagt á í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í júlí, var einmitt á leið þangað. Þó er heldur ekki talið útilokað að þessi sending hafi verið á leið á markað í Afganistan eða Pakistan. Áætlað er að Norður-Kóreumenn hafi einn milljarð dollara á ári upp úr ólöglegri vopnasölu en viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2006 nær yfir sölu vopnabúnaðar út úr landinu.
Mest lesið Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Innlent Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Innlent Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Innlent Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Innlent Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Erlent Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Innlent Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Erlent Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Innlent Fleiri fréttir Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Chunk er loksins „feitasti“ björninn Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Tæplega hundrað nemenda saknað Gríðarleg öryggisgæsla í Kaupmannahöfn í aðdraganda leiðtogafundar Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Tala látinna hækkar á Filippseyjum Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Vilja Diddy í ellefu ára fangelsi „Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið“ Um þúsund manns teknir af lífi í Íran það sem af er ári Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Leiðtogar fagna áætluninni en bíða svara frá Hamas Misstu allt samband við Internetið Erlendir miðlar fjalla um gjaldþrot Play Ísraelar samþykkja friðaráætlun Trumps Mafíósar dæmdir til dauða Öruggur um að brátt ríki friður á Gasa Freista þess að koma aðildarumsókn Úkraínu fram hjá Orbán Adams hættir og Cuomo og Mamdani skiptast á skotum Fyrrverandi landgönguliði drap að minnsta kosti fjóra í Michigan Sjá meira