Þrjátíu umsóknir liggja fyrir 23. febrúar 2009 03:00 Þorsteinn er í óða önn að undirbúa Iceland Airwaves-hátíðina sem verður haldin í haust.
Undirbúningur er í fullum gangi fyrir næstu Airwaves-hátíð sem verður haldin í haust eins og undanfarin ár. Að sögn Þorsteins Stephensen hjá Hr. Örlygi eru þrjátíu umsóknir komnar frá ýmsum hljómsveitum um að spila á hátíðinni. „Við ætlum að sjá hvað kemur best út. Við erum með mörg spennandi mál á borðinu," segir hann. Breska tónlistarbiblían Music Week sagði nýverið að enn ætti eftir að borga tveimur breskum hljómsveitum fyrir síðustu hátíð og að Hr. Örlygur hefði óhreint mjöl í pokahorninu. Þorsteinn játar að enn eigi eftir að borga þremur til fjórum aðilum sem tóku þátt í hátíðinni síðasta haust. Telur hann að heildargreiðslan nemi 3-400 þúsund krónum. Spurður hvort orðspor hátíðarinnar hafi ekki beðið hnekki erlendis segir Þorsteinn svo ekki vera. „Orðspor hátíðarinnar hefur ekkert skaðast. Þegar við tölum við okkar umboðsmenn og skrifstofur er það mjög augljóst að það líta allir á Airwaves sem eina bestu tónlistarhátíð í heiminum. Það urðu tafir á greiðslum út af þessu bankahruni og það voru einn eða tveir sem tóku því eins og það væri verið að svíkja þá. En þetta eru bara sömu afleiðingar og önnur íslensk fyrirtæki hafa þurft að ganga í gegnum," segir hann. „Auðvitað hafa menn haft áhyggjur þegar það er verið að bóka bönd. Menn úti hafa minni tiltrú á að það sé hægt að láta hlutina ganga á Íslandi. Við finnum fyrir því eins og aðrir." - fb
Mest lesið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Fleiri fréttir Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Sjá meira