Innlent

Sendiskrifstofum lokað í Níkaragva og Srí Lanka

Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands.
Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands.
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að loka í sumar sendiskrifstofu Íslands í Níkaragva sem jafnframt er umdæmisskrifstofa Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Áður hafði verið tilkynnt að starfsemi stofnunarinnar á Srí Lanka ljúki um mitt ár.

Haft er eftir Sighvati Björgvinssyni, framkvæmdastjóra Þrónunarsamvinnustofnunar Íslands, í tilkynningu að ástæðan fyrir lokuninni sé niðurskurður í framlögum til Þróunarsamvinnustofnunar og fall íslensku krónunnar.

Samstarfslöndum Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu fækkar um tvö á þessu ári. Starfsemin verður síðar á árinu eingöngu bundin við Afríkuríki eins og eins og hún var allar götur fram til ársins 2004.

Frá bænum Camoapa í Níkaragva. MYND/Gunnar Salvarsson
Sighvatur bendir á að umsvif stofnunarinnar í samstarfslöndunum dragist saman um 36% eða úr 22 milljónum bandarískra dala á síðasta ári niður í 13 milljónir dala á þessu ári. ,,Þessi mikli samdráttur hefur það í för með sér að ÞSSÍ mun á þessu ári aðeins geta staðið við þær skuldbindingar sem stofnunin hafði undirgengist fyrir þann tíma en hvorki sett fjármuni í ný verkefni né í kostnað við undirbúning nýrra verkefna."

Að sögn Sighvats verður staðið við skuldbindingar um jarðhitaverkefni í Níkaragva sem samið hefur verið um til ársins 2012 þótt formlegri viðveru Þróunarsamvinnustofnunar í landinu ljúki í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×