Innlent

Ekki misnota stæði fatlaðra

Bílastæði fatlaðra. .
Bílastæði fatlaðra. .

„Fatlaðir eiga sama rétt til aðgengis og annað fólk og því er mikilvægt að þessi mál séu í sem besta lagi,“ segir í tilmælum Umferðarráðs til sveitarfélaga og umferðaryfirvalda um að bæta merkingar og aðgengi á bílastæðum fatlaðra.

Ráðið vill láta hækka sektir á ófatlaða sem leggja í stæði fatlaðra og skorar á þá sem ekki hafa rétt til að nýta sér þessi stæði til að virða rétt þeirra sem séu háðir þeim. Þá segir að miða þurfi stærð og umhverfi stæðanna við að þau nýtist auðveldlega öllum fötluðum. „Bæði þurfa yfirborðsmerkingar og skilti að vera sýnileg, þannig að enginn vafi leiki á að um slíkt stæði sé að ræða.“- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×