Geislasteinarnir gufaðir upp 16. desember 2009 04:30 Geislasteinar Steina frá Teigarhorni er að finna í öllum stærstu náttúruminjasöfnum heims.
Rannsókn lögreglunnar á Eskifirði á innbroti og þjófnaði úr steinasafninu á Teigarhorni við Djúpavog hefur engum árangri skilað. Um 500 geislasteinum var stolið úr safninu um miðjan október að verðmæti fimmtán til tuttugu milljónir króna. Jónína Ingvarsdóttir, ábúandi á Teigarhorni og einn eigenda steinasafnsins, segir að vonir hafi verið bundnar við að steinarnir kæmu fram vegna þess hversu umfang þeirra er mikið. Þyngsti steinninn sem var numinn á brott var tugir kílóa að þyngd. Sú kenning að steinarnir hafi verið seldir úr landi eða þeim stolið fyrir erlendan steinasafnara, virðist líklegri með hverjum deginum, segir Jónína. Eins og sagt var frá í fréttum í október var brotist inn þegar ábúendur á Teigarhorni voru fjarverandi. Þeir sem þar voru á ferð tóku sér góðan tíma í safninu því steinunum var pakkað inn til flutnings. „Þeir komu hingað til að taka steinana og voru vel undirbúnir. Hvaða þjófar tækju sér góðan tíma í að stela steinum en láta tómt íbúðarhús eiga sig,“ spyr Jónína. Steinarnir voru ótryggðir og því er missirinn mikið fjárhagslegt áfall fyrir Jónínu og hennar fólk. Hins vegar er missirinn ekki minni fyrir íslenska þjóð. Steinarnir eru einstök náttúrugersemi á heimsvísu og hafa verið eftirsóttir af jarðvísindamönnum, háskólum og áhugafólki um steindafræði í tugi ára. - shá
Mest lesið Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira