Erfitt að vera sonur bin Laden Atli Steinn Guðmundsson skrifar 19. nóvember 2009 07:22 Omar bin Laden.
Omar bin Laden segist langt í frá vera af sama sauðahúsi og faðir hans og kveðst auk þess hafa andúð á ofbeldi. Það er ekki alltaf auðvelt að eiga frægan pabba og það hefur Omar bin Laden sannarlega fengið að reyna á eigin skinni. Omar er fjórði elsti sonur hryðjuverkakóngsins Osama bin Laden og segir eftirnafnið ekki beint verða sér til framdráttar. Omar leysir frá skjóðunni í viðtali við breska tímaritið New Statesman og rifjar þar meðal annars upp hina skelfilegu atburði 11. september 2001. Þann dag var Omar staddur á heimili ömmu sinnar, móður Osama, og hafði fengið sér blund. Hann vaknaði heldur betur við vondan draum þegar frændi hans stóð æpandi yfir honum og hrópaði: „Sjáðu hvað pabbi þinn var að gera!" Frændinn benti honum á sjónvarpsskjá þar sem sjá mátti brennandi tvíburaturna í beinni útsendingu. Omar segist hins vegar ekki trúa því að Osama bin Laden hafi staðið á bak við þessar þrælskipulögðu árásir, til þess hafi samtök hans verið allt of veigalítil. Þá skoðun hans setur hann auk annars fram í nýútkominni bók sem hann ritar í samstarfi við móður sína og metsöluhöfundinn Jean Sasson en verkið ber titilinn Að alast upp sem bin Laden, eiginkona og sonur Osama deila leyndarmálunum. Meðal þess sem fram kemur í bókinni er afsökunarbeiðni Omars til allra fórnarlamba föður hans. Bókin kom út fyrir mánuði og verður án efa vinsæl jólagjöf í Mið-Austurlöndum.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Fleiri fréttir Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Sjá meira