Samfylkingin ein skilar á réttum tíma 11. desember 2009 04:45 Stjórnmálamenn eru flestir búnir að skila inn fjárhagsupplýsingum vegna síðustu alþingiskosninga. Nú er mælst til þess að þeir og flokkarnir skili svipuðum upplýsingum allt aftur til ársins 2002.Fréttablaðið/stefán
Hátt í 180 tilkynningar frá frambjóðendum og flokkum höfðu borist Ríkisendurskoðun að loknum skrifstofutíma í gær, þegar frestur stjórnmálamanna og -flokka til að skila margvíslegum upplýsingum um fjármál sín síðustu árin rann út. Samfylkingin var eini flokkurinn sem skilaði upplýsingum um fjárhag sinn, en Framsóknarflokkurinn hafði boðað að upplýsingar bærust. Ekkert hafði heyrst frá öðrum flokkum. Flokkar og frambjóðendur hafa verið beðnir um að skila upplýsingum um öll bein framlög, sem nema 300 þúsund krónum eða meira. Þeir sem eru undir þessu marki sleppa með að skila einfaldri yfirlýsingu um það. Enginn er þó skyldugur til að greina frá fjármálum sínum aftur í tímann, heldur segir í lögunum að Ríkisendurskoðun birti upplýsingarnar að ósk frambjóðanda. Stjórnmálaflokkar eiga að skila inn fjárhagslegu yfirliti um tímabilið 2002 til 2006. Frambjóðendur í forvali eða prófkjöri til alþingis- eða sveitarstjórnarkosninga sem buðu sig fram árin 2006 og 2007 eiga einnig að skila upplýsingum. Þá skulu frambjóðendur til embættis formanns eða varaformanns innan flokkanna frá 2005 til 2009 gera grein fyrir sér. Ríkisendurskoðun á að birta upplýsingarnar fyrir lok ársins. Lárus Ögmundsson, skrifstofustjóri hjá Ríkisendurskoðun, heldur utan um þessi mál þar á bæ. Hann hefur ekki fengið upplýsingar frá öllum flokkum um heildarfjölda frambjóðenda á þessum árum, það er hversu háu hlutfalli þessar 180 tilkynningar sem borist hafa Ríkisendurskoðun samsvara. Vonast hafi verið eftir betri heimtum. „Við höfum engar upplýsingar um heildarfjöldann. Við erum bara verkfæri til að taka þær saman,“ segir hann. Ríkisendurskoðun sé ekki ætlað að sannreyna þessi gögn frekar en önnur gögn frá stjórnmálamönnum. „Þetta var dauft framan af en svo lifnaði nú yfir þessu síðustu dagana,“ segir hann. Mest hafi verið skilað inn af yfirlýsingum um að frambjóðandi hafi verið með framlög undir 300 þúsundum. Lárus bendir á að margir kunni að eiga erfitt með að gera grein fyrir framlögum aftur í tímann. Ekki sé víst að allir hafi haldið utan um slík gögn. Stofnunin mun taka við gögnum áfram næstu daga, vilji fleiri láta birta um sig upplýsingar. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira