Innlent

Jóhanna og Steingrímur boða til blaðamannafundar

Forystumenn ríkisstjórnarinnar.
Forystumenn ríkisstjórnarinnar. Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa boðað til blaðamannafundar um lausn Icesavedeilunnar. Fundurinn hefst klukkan fjögur.

Fyrr í dag sendi fjármálaráðuneytið frá sér fréttatilkynningu.

„Ríkisstjórnin samþykkti í gær að samninganefnd um Icesave myndi undirrita samning til lausnar Icesave deilunni við Hollendinga og Breta.

Samkomulagið er mikilvægur áfangi í endurreisn íslensks efnahags. Breska fjármálaráðuneytið hefur þegar beint þeim tilmælum að aflétta frystingu á eignum Landsbankans í Bretlandi og mun það gerast strax 15. júní næstkomandi. Samkvæmt samkomulaginu verða eignir Landsbankans notaðar til greiðslu á skuldbindingum vegna Icesave. Íslenska ríkið mun engar greiðslur þurfa að inna af hendi vegna Icesave næstu sjö árin. Árið 2016 mun Tryggingasjóður innstæðueigenda gefa út skuldabréf sem ríkissjóður ábyrgist og er líftími þess 8 ár. Eignir Landsbankans munu ganga til þess að borga það bréf niður.

Í framhaldinu verður málið kynnt almenningi og frumvarp lagt fram á Alþingi um ríkisábyrgð vegna þessa samkomulags. Forsætis- og fjármálaráðherra munu halda blaðamannafund síðar í dag þar sem nánar verður greint frá samkomulaginu."






Tengdar fréttir

Vextir af Icesave-láni 35 milljarðar á ári

Íslenska ríkið mun ábyrgjast um 640 milljarða króna skuld til Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi, samkvæmt samkomulagi sem náðst hefur við bresk yfirvöld. Lánið mun bera 5,5 prósenta vexti á ári, en hvorki þarf að greiða afborganir né vexti næstu sjö ár.

Framsóknarþingmaður: Stjórnin er að svíkja þjóðina

Eygló Harðardóttir, þingmaður og ritari Framsóknarflokksins, segir að með samkomulagi sínu við Breta og Hollendina um Icesave reikningana sé ríkisstjórnin að svíkja þjóðina. Hún segir að Samfylkingin hafi aldrei haft vilja til að kanna lagastöðu Íslands í málinu. „Ég tel þetta samkomulag vera mikil svik,“ segir þingmaðurinn.

Ísland frjálst undan hryðjuverkalögum fyrir þjóðhátíð

Hryðjuverkalögum Breta gegn Íslendingum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verða aflétt eftir hálfan mánuð, samkvæmt samkomulagi íslensku samninganefndarinnar vegna Icesave við Breta og Hollendinga. Samningaviðræðum lauk um miðnætti í nótt.

Ekki lagalegar forsendur fyrir samkomulaginu um Icesave

Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, er ósáttur við að stjórnvöld hafi ákveðið að greiða Icesave reikningana. Fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að hann telji ekki lagalegar forsendur vera fyrir samkomulagi um greiðslurnar.

Bretar fagna Icesave samkomulaginu

Bresk stjórnvöld fagna Icesave samkomulaginu sem nú hefur náðst. Vilji Íslendinga, til að ábyrgjast skuldbindingar sínar og endurgreiða reikningseigendum, þykir sérstakt fagnaðarefni samkvæmt fréttavefnum BBV.

Samkomulagið betra en fyrri drög

Samkomulag það sem tókst í gærkvöldi um Icesave skuldbindingar Íslendinga er mun hagstæðara en drög að samkomulagi sem lágu fyrir í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde. Hryðjuverkalögum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verður aflétt eftir tæpan hálfan mánuð.

Gjaldþrot Seðlabankans stærra mál en Icesave

Gjaldþrot Seðlabankans er enn stærra mál en Icesave. Vaxtakjörin á Icesave láninu gera það þó að verkum að Icesave er í fyrsta sæti þegar kemur að álögum á þjóðina. Þetta segir Ólafur Arnarson, hagfræðingur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×