Lífið

Allt varð brjálað hjá Tyru Banks

Vinsæl
Tveir voru fluttir á sjúkrahús og þrír handteknir þegar átök brutust út í New York þar sem stúlkur biðu eftir að komast í inntökupróf fyrir sjónvarpsþáttinn American‘s Next Top Model. Tyru Banks varð þó ekki meint af.
Vinsæl Tveir voru fluttir á sjúkrahús og þrír handteknir þegar átök brutust út í New York þar sem stúlkur biðu eftir að komast í inntökupróf fyrir sjónvarpsþáttinn American‘s Next Top Model. Tyru Banks varð þó ekki meint af.

Fyrirsætubransinn er harður heimur en væntanlega hefur engin búist við viðlíka átökum þegar áheyrnaprufur fyrir American‘s Next Top Model fóru fram í New York.

Sex konur sem gengu með fyrirsætudrauminn í maganum slösuðust og þrír voru handteknir þegar Tyra Banks blés til árlegra inntökuprófa fyrir þáttinn sinn vinsæla, Næsta Ofurfyrirsæta Bandaríkjanna.

Vefmiðlar þar vestra og útvarpsstöðvar segja mikil átök hafi brotist út á meðal kvennanna þar sem þær stóðu í röð. Talið er að hátt í þúsund konur hafi staðið í röð og vonast til að hljóta náð fyrir augum hinnar duttlungafullu Banks þegar bíl var ekið uppað röðinni. Farþegi í bílnum var að reykja og einhver í röðinni hrópaði eldur. Þetta olli mikilli hræðslu meðal kvennanna og allt hljóp í bál og brand þegar þjóf bar að garði og gerði tilraun til að ræna veskjum þeirra sem stóðu fyrir utan. Ef til vill hefur hann búist við að þarna væru miklar smekkmanneskjur á ferð enda um tískuþátt að ræða. Tvær þeirra sem slösuðust voru fluttar á sjúkrahús en viðstaddir voru skelkaðir enda ekki eitthvað sem þær höfðu búist við.

Þetta er í þretttánda sinn sem Tyra Banks leitar að toppfyrirsætum fyrir þáttinn. Hann hefur notið mikilla vinsælda bæði þar vestra og útum allan heim, þar á meðal hér á Íslandi. Svipuð þáttaröð hefur einnig verið í gangi í Bretlandi. Keppendur í þeim þætti hafa meðal annars komið hingað til lands en íslenski tískuljósmyndarinn Huggy sá þá um að mynda þær í Bláa Lóninu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.