Lífið

Gerði tónlist fyrir humarsúpu

Tölvuspiluð humarsúputónlist. 7oi losnar við söngfælnina á nýju plötunni. 
Fréttablaðið/gva
Tölvuspiluð humarsúputónlist. 7oi losnar við söngfælnina á nýju plötunni. Fréttablaðið/gva

Tónlistarmaðurinn 7oi fékk óvænta kynningu á veitinga­húsum í Japan.

Ný plata með tónlistarmanninum 7oi (Jóhann Friðgeir Jóhannsson), Don’t Push The Rocks In My Face, er komin út. Þetta er fimmta platan hans, en hinar voru heimabrugg sem vöktu athygli í ýmsum afkimum.

Meðal þeirra sem kveiktu á tónlistinni var Íslandsvinurinn Yuka Ogura sem komið hefur á ófáar Airwaves og er öðrum duglegri að koma íslenskri tónlist á framfæri í Japan. Í gegnum hana var tónlist Jóhanns notuð í fimmtíu útibúum súpuveitingahússins Soup Stock Tokyo í Japan. „Keðjan var víst að byrja með íslenska humarsúpu á matseðlinum og þeir vildu fá íslenska tónlist af því tilefni. Ég var látinn búa til klukkutíma af tónlist sem síðan gekk í lúppu á þessum stöðum,“ segir Jóhann.

Hann segir þetta tækifæri hafa verið góða hvatningu til að klára nýju plötuna og hann hefur þegar selt slatta af henni til Japans.

Jóhann ólst upp á Ísafirði. Hann hefur fengist við tónlistarsköpun síðan hann fékk fyrstu tölvuna sína á unglingsaldri og klárar tónsmíðanám frá LHÍ í vor. Nýja platan er fjölbreytt en lögin eiga það sameiginlegt að vera lágstemmd. Þá syngur Jóhann nú í fyrsta skipti á plötum sínum. „Ég ákvað bara að losa mig loksins við söngfælnina. Fólk getur til dæmis hlustað á lagið „Bad Times were enjoyed by all“ og róað sig aðeins á þessu kreppudrama í smá stund.“

drgunni@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.