Erlent

Breska drottningin vill frið frá ljósmyndurum

Elísabet brosir sjaldan fyrir ágenga ljósmyndara.
Elísabet brosir sjaldan fyrir ágenga ljósmyndara.

Elísabet Bretlandsdrottning hefur ákveðið að fara í hart við ágenga ljósmyndara í Bretlandi og boðar lögsóknir verði þeir of ágengir um jólin þegar breska konungsfjölskyldan fer í árlegt jólafrí til Sandringham í Englandi.

Ljósmyndarar hafa hingað til tekið myndir af konungsfólkinu með vígalegum aðdráttarlinsum og hinir konungsbornu hafa látið það yfir sig ganga svo lengi sem þeir fara ekki inn á landareign fjölskyldunnar.

Nú hefur drottningin hinsvegar ákveðið að fela einum af lögfræðingum sínum, sem sérhæfir sig í lögum um friðhelgi einkalífsins, skoða hvort mögulegt sé að fara í mál við ljósmyndarana taki þeir myndir af meðlimum fjölskyldunnar við daglegt amstur á einkalóð sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×