Innlent

Hátt í 900 fóstureyðingar árið 2007

Alls voru 877 fóstureyðingar skráðar hjá konum með lögheimili á Íslandi árið 2007, sem er svipað og árin 2004 og 2005, eftir því sem fram kemur í Talnabrunni Landlæknis. Tölur um fóstureyðingar sýna að þeim hefur farið heldur fækkandi undanfarinn áratug.

Að jafnaði gangast flestar konur í aldurshópnum 20-24 ára undir fóstureyðingu. Ríflega 27% allra fóstureyðinga árið 2007 voru framkvæmdar á konum í þessum aldurshópi. Fóstureyðingum fjölgaði meðal 19 ára og yngri hlutfallslega árið 2007 eftir nokkra fækkun hin síðari ár. Sú fækkun hefur jafnan verið skýrð með tilkomu og auðveldara aðgengi að neyðargetnaðarvörnum auk öflugs fræðslu- og forvarnastarfs. Frá því að neyðargetnaðarvarnir komu á markað árið 1998, jókst sala þeirra hratt fram til ársins 2005, en hefur síðan þá staðið nokkuð í stað.

Hlutfall fóstureyðinga meðal kvenna 40 ára og eldri af heildarfjölda framkvæmdra fóstureyðinga er nú um 3,2% og hefur ekki verið lægra í nokkra áratugi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×