Lífið

Frægari en hann vildi viðurkenna

Benedikt S. Lafleur er skráður í Samfylkinguna en ekki L listann.
Benedikt S. Lafleur er skráður í Samfylkinguna en ekki L listann.

Í tilkynningu frá sundkappanum Benedikt S. Lafleur, kemur fram að hann er ekki félagi L listans og hefur ekki hug á nokkurn hátt að styðja það stjórnmálaafl eða er handgenginn því framboði á nokkurn hátt.

„Undanfarið hafa margir komið að máli við mig eftir að ég birtist augnablik á kynningarfund L listans og var myndaður í fréttum Ríkissjónvarps, ég hef fengið póst frá ýmsu fólki og verið stoppaður á götu úti vegna þess að svo margir halda að ég sé byrjaður í nýjum stjórnmálaflokki," segir Bendedikt í yfirlýsingunni.

Þá segir hann að það hafi komið sér á óvart hve margir höfðu fylgst með fréttunum og séð sig í sjónvarpinu.

„Ég er farinn að trúa því að ég sé frægari en ég vildi viðurkenna," segir Benedikt í yfirlýsingunni.

Hann segist hafa verið staddur á umræddum fundi af forvitni og eiginlega fyrir tilvijlun að fá sér kaffi.

„Bjarni Harðarson rekur bókabúð á Selfossi, Sunnlenska, og ég þekki hann af þeim viðskiptum. Vissi reyndar ekki að L listinn væri svona andsnúinn ESB fyrr en ég rak augun í það í blöðunum á sama augnablikinu og ég var filmaður. Þess var hins vegar ekkert sérstaklega getið í skeytum listans á Face book."

Benedikt segir að þessi misskilningur sé sérstaklega óþægilegur þar sem stefna L listans sé á alveg öndverðum meiði við stjórnmálaskoðanir sínar, en hann er eindreginn Evrópusinni að eigin sögn.

„Er skráður í Samfylkingunni og tel að sá flokkur með Jóhönnu í fararbroddi sé langbesti kostur fyrir Íslendinga í þeirri stöðu sem við erum í núna. Vinstri grænir standa sig líka vel en ég er ósammála stefnu þeirra í evrópumálum og það að kalla sig vinstri flokk, ég er nefnilega ekki neitt sérstaklega vinstri sinnaður, heldur fremur miðjumaður, eða segjum óháður hinni gömlu kreddupólitík: vinstri - hægri."

Þess má geta að í síðusut kosningum var Benedikt í framboði fyrir Íslandshreyfinguna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.