Taugarnar lykilatriði í kvöld 4. apríl 2009 05:00 Taugastríð Lið MR og MH eigast við í kvöld í úrslitum Gettu betur. Lið MR er skipað (frá vinstri): Vigni Má Lýðssyni, Birni Reyni Halldórssyni og Elíasi Karli Guðmundssyni. Lið MH er skipað (frá vinstri): Skúla Þór Jónassyni, Inga Þór Óskarssyni og Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.
Í kvöld eigast MH og MR við í spurningakeppni framhaldsskólanna. Taugarnar verða þandar þegar menntskælingarnir úr höfuðborginni eigast við í beinni útsendingu úr sjónvarpssal Ríkissjónvarpsins í Efstaleiti. Lið MH og MR hafa farið nokkuð ólíka leið í úrslitin. MR hefur unnið sínar viðureignir nokkuð auðveldlega, fór á kostum gegn Menntaskólanum á Egilsstöðum í áttaliða-úrslitum og vann Borgarholtsskóla nokkuð auðveldlega í undanúrslitunum. MH fór einnig nokkuð létt í gegnum áttaliða-úrslitin, sigraði þar Fjölbrautaskóla Suðurnesja en í undanúrslitunum var spennustigið við suðumarkið. MH hafði þar betur en Verslunarskólinn með því að svara síðustu spurningunni, þríþrautinni, rétt. Páll Ásgeir Ásgeirsson var höfundur spurninga og dómari keppninnar í fyrra og Fréttablaðið fékk hann til að rýna aðeins í viðureign liðanna í kvöld. „Sagan segir mér að MR muni vinna, þetta er ekkert byggt á faglegri skoðun, það er bara frávik ef einhver annar skóli en MR vinnur þessa keppni. Menn mega þó ekki gleyma því að það eru alltaf undantekningar frá öllum reglum,“ segir Páll. Orð að sönnu, MH hefur aldrei unnið þessa keppni. MR hefur hins vegar farið með sigur af hólmi oftar en nokkurt annað lið, alls þrettán sinnum. Ef Hljóðneminn fer niður í miðbæ verður það þriðja árið í röð. Páll bætir því við að þegar komið sé á þennan stað í keppninni skipti hæfni liðanna minna máli en oft áður. „Þetta snýst alveg rosalega mikið um taugastyrk og andlegt jafnvægi, við höfum oft séð það í þessum þáttum, andlegi þátturinn er alveg gríðarlega mikilvægur,“ segir Páll. Spyrill í kvöld verður sem fyrr Eva María Jónsdóttir, dómari og spurningahöfundur er Davíð Þór Jónsson og stigavörður Ásgeir Erlendsson. Hinir tveir síðastnefndu hafa vakið mikla athygli fyrir smekklegan klæðnað í sjónvarpinu að undanförnu en mikil leynd hvílir yfir klæðaburði þeirra í kvöld. „Hann verður við hæfi,“ var það eina sem Davíð Þór vildi láta hafa eftir sér í samtali við Fréttablaðið. freyrgigja@frettabladid.is Fréttablaðið/ANton
Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira