Segir samræmd próf vera ofmetna aðferð 18. nóvember 2009 05:00 Formaður starfshóps um námsmat í grunnskólum segir að hópurinn muni hafa víðtækt samstarf við fagaðila. Ætlunin er, meðal annars, að kortleggja mismunandi aðferðir við námsmat sem notaðar eru í skólunum. Nemendur í Hlíðaskóla við samræmd próf.fréttablaðið/gva
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður starfshóps um námsmat í grunnskólum Reykjavíkurborgar, hafnar því að ekki verði haft samráð við fagaðila. Formaður Skólastjórafélags Reykjavíkur kvartaði yfir því í Fréttablaðinu í gær og taldi líklegt að niðurstaða hópsins yrði gefin fyrirfram. Lilja Dögg segir það af og frá; ákveðið hafi verið að hafa starfshópinn fámennan og aðeins skipaðan stjórnmálamönnum sem flestir hagsmunaaðilar yrðu síðan kallaðir til samstarfs við. Hún eigi til að mynda fund með skólastjórum á morgun. Þá verði haft samstarf við menntamálaráðuneytið. „Starf hópsins verður þríþætt. Í fyrsta lagi ætlum við að gera heildarúttekt á námsaðferðum í grunnskólum borgarinnar. Þá ætlum við að kanna hvernig samræmd könnunarpróf í tíunda bekk hafi nýst og í þriðja lagi hvort jafnræðis sé gætt við inntöku nemenda í framhaldsskóla.“ Kjartan Magnússon, formaður menntaráðs, lýsti því yfir í Fréttablaðinu á mánudag að hann vildi taka upp samræmd próf upp úr grunnskólum. Lilja segist munu móta sína skoðun eftir vinnu starfshópsins. Jón Torfi Jónasson, prófessor við Háskóla Íslands og forseti menntavísindasviðs skólans, segir hið besta mál að skoða hugmyndir um námsmat upp á nýtt. Samræmd próf upp úr skólum hafi hins vegar nánast aldrei gegnt því hlutverki sem þau áttu að gegna; að vera upplýsingatæki fyrir skólana svo þeir gætu bætt um betur fyrir þá nemendur sem prófin þreyta. Þau hafi hins vegar virkað sem aðhaldstæki, en spurning sé hvort þau séu rétta meðalið. Jón Torfi segir samræmdu prófin hafa haft ótrúleg áhrif í gegnum tíðina og stýrt áherslum skóla, miðað við hve litlu máli þau í raun og veru hafi skipt. Yfirleitt hafi nemendur tekið samræmd próf og farið síðan í heimaskóla, en það hafi skipt tiltölulega lítinn hóp máli. „Þegar skólakerfið nær ekki að taka við öllum eins og gerðist í vetur og fyrir nokkrum árum, skipta prófin máli fyrir ákveðinn hóp nemenda og þá stundum til skaða.“ Flestir nemendur hafi tekið prófin og haldið áfram, aldrei skoðað einkunnirnar aftur. „Fyrir mjög stóran hlut nemenda skiptir einkunnin í sjálfu sér engu máli.“ kolbeinn@frettabladid.is lilja dögg alfreðsdóttir
Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Fleiri fréttir Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Sjá meira