Samkynhneigður páskabolti í Reykjavík 2. febrúar 2009 06:00 Strákanir í St. Styrmi keppa á Iceland Express Cup, sem verður haldið hérlendis um páskana.
Alþjóðlegt fótboltamót samkynhneigðra, Iceland Express Cup, verður haldið hér á landi um páskana á vegum íþróttafélags samkynhneigðra karla, St. Styrmir. Þegar hafa átta erlend lið skráð sig, þar á meðal frá Danmörku, Englandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Einnig taka þátt tvö til þrjú lið á vegum Styrmis, auk nýstofnaðs íslensks lesbíuliðs, Lez Jungle, sem mun keppa við erlent lesbíulið. „Við höfum verið að keppa erlendis undanfarin ár. Við erum búnir að byggja upp gott tengslanet við þessi lið, sérstaklega frá London og Norðurlöndunum og okkur datt í hug að það gæti verið gaman að geta haldið svona mót á Íslandi,“ segir Alfreð Hauksson, formaður Styrmis. „Eins og aðstæður hafa þróast virðist þessi tímasetning hafa hentað ágætlega. Krónan er veik og það virðist vera áhugi hjá ferðamönnum að koma til landsins.“ Kristjana Guðrún Arnarsdóttir hjá Lez Jungle segir að liðið hafi verið stofnað síðasta sumar í tengslum við samnefnda heimasíðu, Lezjungle.com, sem hún stofnaði ásamt kærustu sinni við góðar undirtektir. Stefnir liðið á að taka þátt í Ólympíuleikum samkynhneigðra sem verða haldnir í Danmörku næsta sumar. Í tengslum við páskamótið verða farnar kynnisferðir í Bláa lónið og hugsanlega í rafting, köfun eða hellaferðir. Ball verður síðan haldið þar sem Páll Óskar verður líklega plötusnúður. Ekki er stefnt að því að halda mótið hér á landi árlega, heldur frekar annað eða þriðja hvert ár og myndu hin Norðurlöndin halda það þess á milli. Nánari upplýsingar um mótið má finna á heimasíðunni Ststyrmir.is. - fb
Mest lesið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið Kíkti í kaffi til kanslarans Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Lífið Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Madison Beer trúlofast NFL-kappa Lífið Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Lífið Fleiri fréttir „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Sjá meira