Borgarstjóralaxinn kominn á bakkann Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 20. júní 2009 12:45
Borgarstjóri Reykjavíkur, Hanna Birna Kristjánsdóttir, var ekki lengi að landa fyrsta laxi ársins úr Elliðaánum. Fimm punda hrygna var komin á bakka ánna laust fyrir klukkan hálf átta. Það var klukkan sjö í morgun sem Hanna Birna var mætt í fullum herklæðum að Elliðaánum. Blíðskaparveður var við árnar og byrjaði að renna fyrir borgarstjóralaxinum - sem er ævinlega sá fyrsti sem veiddur er í ánum á sumrin. Hefð er fyrir því að borgarstjórinn renni fyrst í Fossinn, þar gerðist ekkert og var þá stefnan tekin á svokallaða Breiðu, að því er segir á síðu Stangveiðifélags Reykjavíkur. Þar skipti ekki togum og eftir snarpa viðureign landaði borgarstjórinn fallegri fimm punda hrygnu - aðeins hálftíma eftir að þessi borgarstjórinn hóf veiðitilraunir. Með í för var þaulreyndur stangveiðimaður sem rotaði fiskinn fyrir borgarstjóra, en stjórnandi borgarinnar hafði beðist undan því að drepa fiskinn. Þetta var Maríulax Hönnu Birnu og því beit hún uggann af fiskinum. Það gekk trauðlega að ná ugganum af - en hún gafst ekki upp fyrr en í fulla hnefana - og át síðan uggann með bestu lyst eins og mönnum ku skylt að gera með sinn fyrsta lax úr á.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Sjá meira