Tugþúsundir flýja eldfjall á Filipseyjum Óli Tynes skrifar 15. desember 2009 14:35 Mayon er byrjað að gjóa glóðaraugum á byggðina fyrir neðan.
Yfirvöld á Filipseyjum byrjuðu í dag að flytja um fimmtíu þúsund manns í Albay héraði þar sem eldfjallið Mayon er talið um það bil að gjósa. Það er um 500 kílómetra sunnan við höfuðborgina Manila. Mayon er virkasta eldfjall Filipseyja og hefur gosið fjörutíu og níu sinnum síðan gos í því var fyrst skráð árið 1616. Í öllum þessum gosum hefur náttúrlega safnast þykkt lag af ösku utan á hlíðar fjallsins. Í desember árið 2006 fórust yfir eittþúsund manns þegar ausandi rigning hleypti af stað mikilli aurskriðu. Fjallið hefur undanfarið verið að senda frá sér gjóskugusur og jarðskjálftar verða fleiri og sterkari. Það er líka farið að sjást í glóandi hraun á toppi fjallsins. Jarðfræðingar telja því víst að eldgos hefjist alveg á næstunni. Á næstunni í jarðfræði getur raunar þýtt dagar eða vikur. Yfirvöld vilja hinsvegar hafa allan varann á og því er strax byrjað að flytja fólk á brott frá hættusvæðum.
Mest lesið Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira