Skilnaðaralda á Íslandi 29. janúar 2009 10:57 Eva María Jónsdóttir, Óskar Jónasson, Hallgrímur Helgason og Oddný Sturludótir.
Hjónaskilnaðir eru áberandi um þessar mundir ef marka má forsíður Séð og Heyrt undanfarið. Í dag prýða nýskilin Hallgrímur Helgason og Oddný Sturludóttir forsíðu blaðsins, vikuna þar á undan mátti sjá fráskilinn Grétar Örvarsson og skilnaður Evu Maríu sjónvarpskonu og Óskars Jónassonar vakti athygli. Vísir hafði samband við Sigríði Klingenberg spámiðil sem er í samband við fjölda manns daglega sem leitar til hennar í von um andlegan stuðning og Kolbrúnu Baldursdóttur sálfræðing sem aðstoðar fólk að sama skapi og spurði hvort þær verða varar við tíðari hjónaskilnaði í erfiðu árferði. Sigríður Klingenberg, Hallgrímur og Oddný. Gjaldþrotahrynan dynur yfir heimilin „Já það er skilnaðaralda í gangi," svarar Sigríður Klingenberg og segir: „En ég tel að 60% hjónabanda ganga saman aftur þegar fólk fer að hugsa á öðrum balans." „Ég hef aldrei frá því að ég byrjaði að vinna með skjólstæðinga mína orðið vör við svona mikið af skilnuðum," segir Sigríður. „Í öllum tilfellum eru það konurnar sem vilja skilnað. Það er eins og þær bregðist öðruvísi við þegar hlutirnir ganga verr. Það er búið að vera mikil streita á heimilunum sem kemur niður á börnunum. Spennan er gífurleg. Ég tel samt að mikið af þessu fólki taki saman þegar vorar því þetta er tímabundið ástand," segir Sigríður. Eva María, Óskar og Kolbrún Baldursdóttir. Upplausn í samfélaginu hefur áhrif „Nei ég finn það ekki beint. En ég gæti hinsvegar trúað að það gæti verið meira því það er upplausn í samfélaginu sem hefur áhrif á fjölskyldurnar sem eru veikar fyrir," segir Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur. "Það toppast algjörlega núna þegar fjárhagur versnar og nú kemur punkturinn yfir i-ið. Þetta eru fjölskyldur þar sem eitthvað hefur verið byrjað áður en árferðið versnaði og nú reynir á hversu sterkar og samheldnar fjölskyldurnar hafa verið," segir Kolbrún. Lítil virðing fyrir hjónabandinu „Það er minni virðing borin fyrir hjónabandi núna í augnablikinu. Fólk telur það ekki vera tiltökumál að skilja. Annað en það var fyrir sjö til átta árum. Fólk rýkur í sitthvora áttina," segir Sigríður. „Þessi gjalþrotahryna sem dynur yfir heimilin hefur þessi áhrif á fjölskyldurnar að þær sligast undan álaginu og fara sitthvora leið. Álagið er orðið of mikið til að þola það," segir Sigríður. „Oft á tíðum loka karlmenn sig af og tjá sig ekki eins mikið á meðan konur láta frekar allt flakka og svo springur allt þegar álagið er mikið," segir Sigríður.
Mest lesið Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum Lífið „Pabbi minn gaf okkur saman“ Lífið Í þrjátíu ára gömlum fötum af mömmu Tíska og hönnun Unnsteinn Manuel og Ágústa selja hvíta miðbæjarperlu Lífið Endurheimti lífsgleðina við gerð ostabakkanna Lífið Er í lagi að fróa sér yfir nektarmyndum af fyrrverandi? Lífið Umdeild mormónadrottning nýja piparjónkan Lífið Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós Lífið Leikari, óperusöngvarar og sjómaður vilja stýra óperunni Menning Leifur Andri og Hugrún selja íbúðina í Garðabæ Lífið Fleiri fréttir Er í lagi að fróa sér yfir nektarmyndum af fyrrverandi? „Pabbi minn gaf okkur saman“ Litrík og ljúffeng búddaskál Unnsteinn Manuel og Ágústa selja hvíta miðbæjarperlu Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum Umdeild mormónadrottning nýja piparjónkan Leifur Andri og Hugrún selja íbúðina í Garðabæ Á leið á heimsmeistaramót í drifti: „Íslendingarnir eru til, við getum þetta líka“ Endurheimti lífsgleðina við gerð ostabakkanna Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós Afar ólíklegt að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael með Sunneva syrgir Bellu: „Ég mun alltaf sakna þín“ „Pabbi Rúríks“ lét sig ekki vanta Alveg sama þótt hann tapi mörgum milljónum „Þetta situr enn þá í mér í dag“ Jóhann Berg og Hólmfríður selja glæsihöllina á Arnarnesi Dóttir Arons Kristins og Láru komin með nafn Segist ekki dauður heldur „sprelllifandi“ Sonur Hersis og Rósu kominn með nafn Ástin kviknaði á Kaffibarnum Staðfesta þátttöku í Eurovision með fyrirvara um þátttöku Ísraela Heitustu trendin í haust „Ég elskaði þig í fyrra lífi, ég elska þig í þessu lífi og mun finna þig í næsta“ Sjarmerandi Vesturbæjarperla með sjávarútsýni Óvíst hvort Ísland verði með í Eurovision Guðrún Sørtveit og Steinar „loksins“ trúlofuð Skringilega stór kaffibolli: „Ég verð aldrei aftur hreinn“ Brúðarbíllinn gömul dráttarvél frá langafa Stjörnulífið: „Skemmtilegasta kvöld lífs míns“ Rick Davies í Supertramp er látinn Sjá meira