Sjö ákærðir fyrir hryðjuverkaárásirnar í Mumbaí 26. nóvember 2009 02:00 Fæddist í miðjum klíðum Þetta litla barn fæddist á sjúkrahúsi í Mumbaí, áður Bombei, meðan árás á sjúkrahúsið stóð yfir fyrir réttu ári.fréttablaðið/AP
Sjö menn voru í gær ákærðir í Pakistan fyrir aðild að hryðjuverkaárásum í Mumbaí á Indlandi á síðasta ári. Þetta eru fyrstu ákærurnar í Pakistan vegna málsins. Í dag er ár liðið frá því að hryðjuverkamenn gerðu árás á nokkrar helstu byggingarnar í fjármálaborginni Mumbaí, einni stærstu borg Indlands. Árásirnar kostuðu 166 manns lífið. Mennirnir sjö neita ásökunum, en þeir eiga yfir höfði sér dauðadóm. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa aðstoðað við undirbúning og framkvæmd árásanna. Þeir eru allir sagðir meðlimir í Lashkar-e-Taíba, samtökum herskárra múslima sem staðið hafa að ýmsum hryðjuverkum á Indlandi. Indversk stjórnvöld hafa sakað tvo mannanna, Zaki-ur-Rehman Lakhvi og Zarrar Shah, um að vera höfuðpaurana á bak við árásirnar. Stjórnvöld í Pakistan hafa til þessa aldrei dregið neina hryðjuverkamenn, sem hafa gert árásir í Indlandi, til ábyrgðar fyrir dómstólum. Á Indlandi standa enn yfir réttarhöld yfir eina árásarmanninum, sem lifði af. Í þeim réttarhöldum hefur komið fram að hópur tíu árásarmanna lagði af stað siglandi frá höfninni í Karachi í Pakistan og kom til Mumbaí. Þar skiptu þeir sér í hópa og réðust inn á hótel, lestarstöð, sjúkrahús og fleiri byggingar. Leyniþjónusta Pakistans og þarlend stjórnvöld hafa lengi verið sökuð um stuðning við Lashkar-e-Taiba og fleiri herská samtök, og notað þau sem eins konar staðgengil fyrir pakistanska herinn í langvinnum átökum við Indland út af Kasmír-héraði, sem bæði löndin gera tilkall til. Stjórnin í Pakistan segir þetta liðna tíð, en margir pakistanskir stjórnmálamenn og yfirmenn í hernum virðast enn hafa taugar til hryðjuverkasamtaka sem gera árásir á Indlandi. Bæði Indverjar og stjórnvöld víða á Vesturlöndum munu því fylgjast grannt með því hvernig réttarhöldunum í Pakistan vindur fram. Pakistönsk stjórnvöld hafa undanfarið farið í hart gegn talibönum og fleiri uppreisnarhópum í norðvesturhluta landsins, nú síðast í héraðinu Suður-Waziristan þar sem talibanar hafa hreiðrað um sig. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Sjá meira