Segist vera nánast eins og endurfæddur 26. nóvember 2009 01:15 Tjáir sig með stuðningi Houben notar lyklaborð til að tjá sig með aðstoð talþjálfa síns, Lindu Wouters.fréttablaðið/AP
Rom Houben segist vera nánast eins og endurfæddur, nú þegar hann hefur fengið hjálp við að tjá sig eftir að hafa legið málvana í 23 ár lamaður eftir bílslys. Læknar héldu hann vera í dái allan tímann, þar til einn áttaði sig loks á því að Houben var með fullri meðvitund. „Ímyndaðu þér bara. Þú heyrir, sérð, finnur til og hugsar en enginn áttar sig á því,“ segir hann með aðstoð talþjálfa, sem hjálpar honum að nota tölvulyklaborð til að tjá sig. „Þetta var sérstaklega pirrandi þegar fjölskyldan mín þurfti á mér að halda,“ sagði Houben, sem átti erfitt með að geta ekki sýnt nein viðbrögð þegar hann frétti af láti föður síns. „Ég gat ekki tekið þátt í sorg þeirra. Við gátum ekki veitt hvert öðru neinn stuðning.“ Talþjálfinn, Linda Wouters, segir Houben stýra hönd hennar á lyklaborðinu. Hún finnur fyrir léttum þrýstingi frá fingrum hans, og greinilegt sé þegar hann mótmælir ef hún ætlar að ýta á rangan hnapp á lyklaborðinu. Til þess að ganga úr skugga um að það sé í raun Houbens sem stýrir stafavalinu hefur verið prófað að sýna honum hluti meðan Wouters er ekki nærri, og síðan er hann spurður út í það sem hann sá þegar hún kemur til baka að aðstoða hann.- gb
Mest lesið Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Innlent Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Erlent Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Veður Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Erlent Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Innlent Ætla að knýja Flatey með sólarorku Innlent Fleiri fréttir Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Rússar sagðir nota efnavopn í Úkraínu í auknum mæli Tveir ferðamenn létust í fílaárás í Sambíu Stunguárás í Tampere hvorki talin hryðjuverk né rasísk árás Sænskur glæpaforingi tekinn fastur í Tyrklandi Leiðtogar Hamas sagðir þokast nær því að samþykkja vopnahlé Vilja nýta formennskuna til að láta sverfa til stáls gegn Ungverjum Tugir slasaðir eftir sprengingu á bensínstöð í Róm Hæstiréttur opnar á brottflutning til þriðja ríkis Engin árangur af símtalinu og fjórtán látnir eftir árás á Kænugarð Stóra og fallega frumvarpið verður að lögum Voru á há-áhættu lista BBC fyrir Glastonbury Fjöldi flugferða felldur niður vegna verkfalls franskra flugumferðarstjóra Danskur covid-samsærissinni bendlaður við rússneskan upplýsingahernað Trúarhópar mótmæla Zúmba-kennslu á Indlandi Stjórnlaus gróðureldur ógnar heimilum á Krít „Stóra og fallega frumvarpið“ enn í limbó á þinginu Combs áfram í gæsluvarðhaldi Sautján ára drengur drukknaði á Hróarskeldu Játar að hafa myrt fjórmenningana í Idaho Jimmy Swaggart allur Evrópuríkjum leyft að nota kolefnisjöfnun erlendis í fyrsta skipti Diddy sakfelldur í tveimur af fimm ákæruliðum Boðar arftaka Dalai Lama Paramount lúffar fyrir Trump og greiðir bætur vegna Kamölu Táningsstúlkan sem lést var að teyma íslenskan hest Sjá meira