Innlent

Meintur smyglari í mál við blaðamenn

Sigurjón M. Egilsson þarf að takast á við meintan Íslandsmeistara í fíkniefnasmygli. Mynd/GVA
Sigurjón M. Egilsson þarf að takast á við meintan Íslandsmeistara í fíkniefnasmygli. Mynd/GVA

Aðalmeðferð fer fram í dag í meiðyrðamáli Rúnars Þór Róbertssonar gegn blaðamanninum Erlu Hlynsdóttur og fyrrum ritstjóra DV, Sigurjóni M. Egilssyni. Rúnar höfðaði málið á þeim forsendum að blaðið hefði kallað hann fíkniefnasmyglara árið 2008. Sjálfur sat Rúnar í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að smyglinu árið 2007. Um var að ræða stófelldan innflutning á kókaíni. Fjögur kíló af efninu voru falin í Benz bifreið sem var á Sundahöfn.

Málsvörn Rúnars þótti athyglisverð á sínum tíma. Hann hélt því fram að vegna fréttaflutnings DV um innflutninginn þá hafi hann verið meðvitaður um að engin efni væri að finna í bílnum þegar hann sótti hann.

Dómstólar voru sammála og var hann sýknaður.

Það var svo í apríl síðastliðnum sem Rúnar var aftur handtekinn. Núna vegna gruns um aðild að risasmygli með skútu frá Evrópu. Yfir tvöhundruð kíló af margvísislegum efnum fundust í skútunni en smyglið er það stærsta sinnar tegundar hér á landi. Þá var samverkamaður hans, sem einnig var ákærður í fyrra smyglinu, handtekinn vegna Papeyjarsmyglsins.

Ekki er langt síðan Rúnar höfðaði skaðabótamál gegn íslenska ríkinu vegna ólögmæts gæsluvarðhalds. Ríkið var sýknað af kröfunni. Það þótti nægjanlega sterkur grunur um að hann ætti hlut að máli til þess að hann væri hnepptur í gæsluvarðhald vegna kókaín smyglsins.

Þá heimtaði Rúnar fimmtán milljónir króna í skaðabætur. Núna sættir hann sig við 2,5 milljón krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×