Lífið

Síðustu forvöð að sjá sýningar

Sýningum á Milljarðamærinni lýkur í apríl. Sigrún Edda og Unnur Ösp í hlutverkum sínum. 
Mynd/Grímur Bjarnason
Sýningum á Milljarðamærinni lýkur í apríl. Sigrún Edda og Unnur Ösp í hlutverkum sínum. Mynd/Grímur Bjarnason

Leikhúsaðsókn hefur verið afar góð á sviðsetningar í leikhúsum landsins á þessum vetri. Í þessum mánuði hverfa nokkrar vinsælar sviðsetningar af fjölunum til viðbótar þeim sem eru að baki. Uppselt er á 27 sýningar á Kardemommubænum í Þjóðleikhúsi fram til 6. júní og hinn 8. maí kemur á fjalir Borgarleikhússins fjölskyldusýningin Söngvaseiður og er þegar uppselt á nær þrjátíu sýningar. Bæði þessi verk verða á fjölum stóru leikhúsanna þar til sumarleyfi hefjast ef að líkum lætur.

Fló á skinni hefur verið sýnd yfir 140 sinnum og lýkur sýningum á þessu vinsæla gamanverki í apríl. Fjórar sýningar eru eftir. Er þetta í þriðja sinn sem Leikfélagið sýnir þennan vinsæla farsa. Tveir úr einleikjaröð Leikfélagsins hverfa af sviðinu í þessum mánuði, Óska og bleikklædda konan og Ég heiti Rachel Corrie, en sýningum verður haldið áfram á Sannleika Péturs Jóhanns og í maí og júní verða ekki færri en fjórar frumsýningar í Borgarleikhúsinu: einleikurinn Djúpið eftir Jón Atla Jónasson með Ingvari E. Sigurðssyni, en verkið er nú á leikför um Skotland í enskri sviðsetningu; Ökutímar sem leikið var norður á Akureyri fyrir ári og Magnús Geir kom með hingað suður í farteskinu og Harry og Heimir sem frumsýnt verður hinn 17. apríl á nýja sviði. Það eru þeir Spaugstofudrengir, Örn Árnason, Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson sem endurvekja sitt gamla grín af Bylgjunni. Og svo Söngvaseiður.

Af fjölum Borgarleikhúss víkja líka Milljarðamærin sem verður leikin fjórum sinnum til í þessum mánuði og Þú ert hér, nýfrumsýnt ádeiluverk Mindgroup um hugarfarsástand í miðju hruni.

Fimm sýningar eru auglýstar í apríl á Þrettándakvöldi í Þjóðleikhúsinu, en áfram heldur þar sýningum á Sædýrasafninu, Eternum og Skoppu og Skrýtlu.

Fyrir norðan eru Fúlar á móti í fullum gangi og í Hafnarfirði er góð aðsókn að Dubbeldusch Björns Hlyns Haraldssonar.

Í Borgarnesi fer að styttast í sýningum á Mr. Skallagrímsson sem Benedikt Erlingsson hefur brátt leikið 200 sinnum, en þar heldur áfram sýningum á Brák.

Ekki er ljóst hvað verður í boði í leikhúsum í sumar, utan að Við borgum ekki verður á fjölum Borgarleikhússins og Grease birtist áhugasömum í þriðja sinn í Lofkastalanum. Leikhúsfólk getur ekki kvartað yfir aðsókn enda er það einkenni á krepputímum að aðsókn að leiksýningum er góð.

pbb@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.