Innlent

Ingimundur hættir

Ingimundur Friðriksson ætlar að láta af störfum hjá Seðlabankanum.
Ingimundur Friðriksson ætlar að láta af störfum hjá Seðlabankanum.

Ingimundur Friðriksson, einn þriggja bankastjóra Seðlabankans, hefur ákveðið að verða við beiðni forsætisráðherra um að láta af embætti. Tekur uppsögn hans gildi á mánudag. Samkvæmt Fréttablaðinu í dag ætlar Eiríkur Guðnason hins vegar að sitja áfram. Í bréfi sem forsætisráðherra sendi bankastjórunum þremur á mánudaginn er þess óskað að þeir láti af embætti þar sem til stendur að endurskipuleggja Seðlabankann. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur Davíð Oddsson enn ekki svarað forsætisráðherra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×