Lífið

Lifðu þig inn í flutninginn og meinaðu það!

Ég og Guðmann Sveinsson gítarleikari mynduðum bandið Trútón og gáfum nýverið út okkar fyrsta lag: Áfram held ég ein. Lagið er eftir mig. Ég frumflutti í Bandinu hans Bubba, segir Thelma Hafþórsdóttir.
Ég og Guðmann Sveinsson gítarleikari mynduðum bandið Trútón og gáfum nýverið út okkar fyrsta lag: Áfram held ég ein. Lagið er eftir mig. Ég frumflutti í Bandinu hans Bubba, segir Thelma Hafþórsdóttir.

„Heyrðu ég er ég soddan Idol-nörd og fylgist vel með því auk þess sem vinkona mín er að keppa núna svo ég er enn áhugasamari," svarar Thelma Hafþórsdóttir söngkona sem var ein af keppendum í sjónvarpsþættinum Bandið hans Bubba.

„Ég horfi keppnina allt öðrum augum nú heldur en fyrir Bandið hans Bubba. Eftir að hafa tekið þátt í þessu sjálf þá finnst mér ég fyrirgefa falskar nótur og fleira betur hjá keppendum því ég veit hvernig það er að vera stressuð og vera kannski ekki með rétta lagið," segir Thelma.

Við erum á fullu að spila, aðallega á árshátíðum og starfsmannaskemmtunum og safna upp í að taka nýtt lag sem við viljum gefa út fyrir sumarið og fylgja laginu: Áfram held ég ein, þétt á eftir.
„En mér líst vel á keppendurna og dómararnir þykja mér góðir enda allir þaulreyndir tónlistarmenn sem vita hvað er að virka og hvað ekki. Reyndar fannst mér þau of góð við suma ef maður má vera leiðinlegur," segir Thelma og hlær.

Áttu góð ráð fyrir Idolkeppendur? „Já ég myndi ráðleggja fólki að taka lög sem það kann upp á tólf! Þetta er ekki rétti tíminn til að taka áhættur. Bara stick to what you know því að stressið er mikið og knappur tími milli þátta," segir Thelma.
Ég hef ég verið að bíða eftir flottum söngleik til að láta ljós mitt skína í og því ákveðin í að skella mér í prufur fyrir Grease. Ef þeir hleypa mér í þær það er að segja! Það hlýtur að vera er það ekki? segir Thelma sem er skemmtilegur viðmælandi, opin og hress.

„Auk þess sem að fólk undir svona miklu álagi virðist ná sér í allar pestar og jafna sig illa á þeim í stressinu. Svo er auðvitað númer eitt, tvö og þrjú að njóta sín upp á sviði.

„Flestir lenda í því að vera stressaðir, hafa valið vitlaust lag, slá nokkrar falsnótur og svo framvegis en enginn tekur það af þér ef þú hefur gaman að því sem þú ert að gera, lifir þig inn í flutninginn og meinar það. Ég held ég hafi komist langt á því."

„Þetta má svo nýta sér seinna í ferlinum því það kemur af því að þú ert beðin um lög sem eru langt frá þínum uppáhalds og þú veist að þú ert ekki vinna neina sigra með en þá er bara að fake it till you make it," segir Thelma og brosir.

Mér fannst frábært að taka þátt í Bandinu hans Bubba. Þetta var algjör speed-kúrs í söng, framkomu og fjölmiðlum og ég tók svo margt með mér. Þó að væri ekki bara allt góða fólkið sem maður kynntist nú og svo sambönd, þau eru mikilvægur þáttur í þessum bransa.

„Svo gaf Kristjana Stefáns mér frábært ráð á sínum tíma og það er á útsendingadeginum að vera ekki að spreða orkunni til allra. Það er svo mikið fjör og margt að gerast að maður vil taka þátt í því en þá er maður bara búinn með orkuna þegar á hólminn er komið."

„Svo það er um að gera að vera svolítið eigingjarn á sjálfan sig og þegar pressan og gagnrýnin er orðin of mikil þá myndi ég brynja mig með egói," segir hún.

Ég hugsa að það hefði tekið mig lengri tíma að gefa út lag og myndband hefði ég ekki farið í keppnina og aldrei hefði mér órað fyrir því að fá Vigni, Adda og Tobba til að spila í því með mér.

„Ég hef verið að syngja síðan ég man eftir mér en hef aldrei fengið eins mörg tækifæri og eftir þáttinn (Bandið hans Bubba)."

„Ekki það að eftir þáttinn hefði einhver komið með samning eða neitt á silfurfati til mín. En ég hafði nokkur trix í hendinni ég nýtti mér þau. Ég ákvað strax að ég skyldi mjólka þetta tækifæri til heljar," segir Thelma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.