Svafa Grönfeldt hætt í HR 14. desember 2009 09:40 Svafa Grönfeldt.
Svafa Grönfeld rektor Háskólans í Reykjavík mun láta af störfum í næsta mánuði. Við rektorsstöðunni tekur Ari Kristinn Jónsson, forseti tölvunarfræðideildar skólans. „HR hefur starfsemi í nýrri háskólabyggingu í Nauthólsvík í janúar og á undanförnum árum hefur skólinn styrkst faglega og fjárhagslega," segir Svafa Grönfeldt, fráfarandi rektor, sem nú hefur ákveðið að hverfa aftur til annarra starfa í atvinnulífinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá skólanum. „Við höfum náð þeim markmiðum sem við settum okkur fyrir þremur árum og nú er HR á spennandi tímamótum að þessum áfanga loknum. Starfsfólk skólans hefur unnið þrekvirki við akademíska uppbyggingu hans, skipulagi og verkferlum hefur verið breytt og tekist hefur að reisa nútímalega og framsækna háskólabyggingu. Ég er afar stolt af nemendum og starfsfólki skólans. Það má segja að HR sé kominn af frumkvöðlastiginu og tilbúinn til að hefja sig til flugs. Það er því mjög ánægjulegt að Ari Kristinn Jónsson sem bæði býr yfir yfirgripsmikilli vísindaþekkingu og forystuhæfileikum, taki nú við keflinu. Það hafa verið forréttindi að starfa með jafn hæfileikaríku fólki og valist hefur til starfa í HR og ég á eftir að sakna þess mikið. Ekki síður mun ég sakna þeirra fjölmörgu nemenda sem ég hef haft samskipti við. Ég óska nýjum rektor og öllum nemendum og starfsfólki HR gæfu í starfi og leik," segir Svafa. Dr. Ari Kristinn Jónsson, tekur við embættinu 23. janúar næstkomandi af Svöfu sem undanfarin þrjú ár hefur leitt umfangsmikið starf skólans til eflingar akademísks styrks og uppbyggingar framtíðaraðseturs í Nauthólsvík. Dr. Ari Kristinn Jónsson. „Ari Kristinn hefur gegnt stöðu forseta tölvunarfræðideildar HR í tæp 3 ár og hefur um árabil verið í fremstu röð í alþjóðlegu tækni- og vísindastarfi. Hann lauk doktorsprófi frá Stanford-háskóla í Bandaríkjunum árið 1997 og að loknu doktorsprófi hóf hann störf hjá NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna, og starfaði þar í áratug sem vísindamaður og stjórnandi. Hann leiddi ýmsar rannsóknir stofnunarinnar á sviðum gervigreindar og sjálfvirkni, þ.á.m. stærsta þróunarverkefni NASA á þessum sviðum. Hann stýrði þróunarteymi fyrir hugbúnað sem notaður hefur verið til að stjórna daglegum aðgerðum Mars jeppanna Spirit og Opportunity, og síðar stýrði hann þróun á tækni sem aðstoðar við stjórn á sólarrafhlöðum alþjóðlegu geimstöðvarinnar." Þá segir einnig að Ari Kristinn hafi hlotið margvíslegar viðurkenningar á ferli sínum. „Fyrir störf sín hjá NASA hlaut hann ýmis verðlaun, þ.á m. hin virtu "NASA Administrators's Award" árið 2004, auk þess að fá "Space Act Award" tvisvar. Árið 2007 hlaut hann Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs, en þau eru árlega veitt vísindamanni sem þykir snemma á starfsævinni gefa fyrirheit um árangur í vísindum og rannsóknum og eru þau ein virtasta viðurkenning sem veitt er í íslensku vísindasamfélagi."„Það er spennandi verkefni að leiða starfsemi Háskólans í Reykjavík á næstu árum. Mikil framþróun hefur orðið í HR á síðustu árum, þar sem öflugur hópur nemenda og vísindamanna frá fjölmörgum löndum er nú samankominn og grunnurinn hefur verið lagður að framsæknum rannsóknarháskóla með hágæðakennslu og sterkum tengslum við atvinnulífið. Þessi grunnur er stökkpallurinn fyrir HR inn í framtíðina. HR er nú fremstur meðal jafningja hér á landi á sínum sérsviðum, en markmiðið er að gera stöðugt betur og halda áfram nýsköpun í kennslu og uppbyggingu vísindastarfs eins og best gerist á alþjóðavettvangi. Svo hefur HR lykilhlutverki að gegna í íslensku samfélagi og framtíðaratvinnulífi þjóðarinnar, með því að tengja á skipulagðan hátt starfsemi skóla og atvinnulífs og efla þannig nýsköpun og fjölbreytni efnahagslífs," segir Ari.„Háskólaráð HR býður Ara hjartanlega velkominn til starfa sem rektor og þakkar Svöfu þann dugnað og kraft sem hún hefur lagt í að leiða skólann farsællega á síðustu árum," segir að lokum.
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira