Halldór hugar að Hafnarfirði Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. september 2009 11:17 Halldór Halldórsson er að hætta á Ísafirði. Mynd/ Anton Brink.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísarfirði, mun hugsanlega gefa kost á sér til þess að leiða lista sjálfstæðismanna í Hafnarfirði í næstu sveitastjórnarkosningum sem fram fara í vor. Heimildir Vísis herma að Haraldur Ólason sem hefur verið oddviti sjálfstæðismanna í bænum undanfarin misseri hyggist hætta og því þurfi að finna nýjan oddvita á listann fyrir kosningarnar. Halldór sé að þreifa fyrir sér á meðal áhrifamanna í Sjálfstæðisflokknum í bænum. Helga Ingólfsdóttir, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, segir að ekki sé búið að taka ákvörðun um það með hvaða hætti valið verður á listann, hvort kjörnefnd muni stilla upp lista eða hvort farið verði í prófkjör. Halldór Halldórsson segir sjálfur í samtali við Vísi að hann sé ekki búinn að taka ákvörðun um það hvert hann stefni eftir að kjörtímabilinu lýkur. Hins vegar hefðu fulltrúar frá þremur sveitarfélögum haft samband við hann vegna framhaldsins. „Það er ekkert nýtt. Það gerðist líka fyrir kosningarnar 2002 þegar ég var búinn að vera fjögur ár á Ísafirði og 2006, þegar ég var búinn að vera í átta ár," segir Halldór. Taki Halldór ákvörðun um það að gefa kost á sér til að leiða lista sjálfstæðismanna í Hafnarfirði er hins vegar allsendis óvíst að hann fái leiðtogasætið án allrar viðspyrnu. Samkvæmt heimildum Vísis er Rósa Guðbjartsdóttir, sem er núna í öðru sæti á lista sjálfstæðismanna, hvergi á förum úr bæjarstjórninni og lýkur á að einhverjir vilji fá hana í leiðtogasætið. Ekki náðist í Harald Ólason, oddvita sjálfstæðismanna, vegna málsins.
Tengdar fréttir Halldór hættir sem bæjarstjóri á Ísafirði Á fundi í bæjarmálafélagi Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ í gærkvöldi tilkynnti Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og oddviti Sjálfstæðismanna í Ísafjarðarbæ um þá ákvörðun sína að gefa ekki kost á sér sem oddviti og bæjarstjóraefni í næstu sveitarstjórnarkosningum vorið 2010. 9. september 2009 09:07 Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira
Halldór hættir sem bæjarstjóri á Ísafirði Á fundi í bæjarmálafélagi Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ í gærkvöldi tilkynnti Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og oddviti Sjálfstæðismanna í Ísafjarðarbæ um þá ákvörðun sína að gefa ekki kost á sér sem oddviti og bæjarstjóraefni í næstu sveitarstjórnarkosningum vorið 2010. 9. september 2009 09:07