Áfangaskýrsla vegna Air France-slyssins kynnt Atli Steinn Guðmundsson skrifar 17. desember 2009 08:36 Hluti af Airbus-vél Air France fluttur til rannsóknarmiðstöðvar vegna slyssins. MYND/AFP/Getty Images
Skýrsla rannsóknarhóps vegna farþegaþotu franska flugfélagsins Air France, sem fórst í Atlantshafi 1. júní í sumar, er væntanleg í dag og verður hún kynnt á blaðamannafundi í Frakklandi. Reyndar er ekki um endanlega skýrslu að ræða heldur áfangaskýrslu sem er númer tvö í röðinni. Stjórnandi rannsóknarinnar segir skýrsluna ekki innihalda neitt óvænt en hún fari dýpra í sum öryggisatriði sem virðist hafa verið ábótavant. Tuttugu og fjögur villuboð sem fjarskiptakerfi vélarinnar sendi sjálfvirkt út virðast gefa til kynna að vélin hafi annaðhvort flogið of hægt eða of hratt inn í dimman kólgubakka en eftir það hvarf hún af ratsjám. Flugritar vélarinnar fundust aldrei og torveldar það rannsóknina mjög. Menn eru þó ekki á því að gefast upp og hyggst rannsóknarhópurinn hefja nýja leit á hafsbotni í febrúar, 1.000 kílómetra úti fyrir norðausturströnd Brasilíu en þaðan var vélin að koma. Í nýju leitinni munu fjarstýrðir leitarkafbátar, búnir hljóðsjám og fleiru, slæða stórt svæði botnsins í leit að ritunum. Af 228 manns, sem voru um borð í vélinni þennan örlagaríka júnídag, komst enginn af og stórir hlutir vélarinnar hafa aldrei fundist.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira