Regnmaðurinn látinn Atli Steinn Guðmundsson skrifar 23. desember 2009 08:10 Kim Peek.
Kim Peek, fyrirmyndin að regnmanninum sem Dustin Hoffman túlkaði í samnefndri kvikmynd, er látinn, 58 ára að aldri. Það er ekki allra að kunna 12.000 bækur gjörsamlega utanbókar, þar á meðal sjálfa biblíuna og nokkrar símaskrár, eða geta sagt nákvæmlega til um hvaða vikudagur ákveðin dagsetning var, þess vegna marga áratugi aftur í tímann. Þetta lék þó allt saman í höndunum á Kim Peek frá Salt Lake City en hann er fyrirmyndin að Raymond Babbit, persónu Dustin Hoffman í kvikmyndinni Rain Man frá 1988, sem sópaði til sín verðlaununum, þar af fernum Óskarsverðlaunum af tvöfalt fleiri tilnefningum. Peek hafði vissulega minni sem á sér ekki hliðstæðu en átti þó við svo mikla líkamlega fötlun að stríða að hann þurfti aðstoð föður síns, Fran Peek, við flestar daglegar athafnir. Ástæðan er sú að Peek stríddi við það ákaflega sjaldgæfa ástand að fæðast án svokallaðra hvelatengsla, taugaknippis sem tengir hægra og vinstra heilahvel. Fyrir vikið hlaut hann takmarkalaust minni en hafði litla sem enga stjórn á líkamshreyfingum. Frægt varð þegar Peek var viðstaddur flutning leikrits eftir Shakespeare og hrópaði upp þegar einn leikaranna sleppti úr orði. „Hverjum er ekki sama?“ spurði leikarinn. „Shakespeare hefði ekki verið sama,“ svaraði Peek að bragði. Darold Treffert, geðlæknir við Háskólann i Wisconsin, sagði að Peek væri eins konar lifandi Google.
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira