Eyða þarf óvissunni - vill Gunnar og spillinguna burt Magnús Már Guðmundsson skrifar 15. júní 2009 10:11 Ólafur Þór Gunnarsson, læknir, er bæjarfulltrúi VG í Kópavogi. „
Óvissa er aldrei góð og hjálpar hvorki bæjarfélaginu og alveg örugglega ekki Sjálfstæðisflokknum né meirihlutanum," segir Ólafur Þór Gunnarsson, oddviti Vinstri grænna í Kópavogi, um stöðu mála í bæjarfélaginu en talsverð óvissa hefur verið um framtíð Gunnars Birgissonar sem bæjarstjóra vegna viðskipta Kópavogs við dóttur hans. Fréttablaðið og Morgunblaðið greina frá því í dag að vaxandi stuðningur sé meðal sjálfstæðismanna við þá hugmynd að Gunnar sitji áfram sem bæjarstjóri. Framsóknarmenn og minnihlutaflokkarnir vilja aftur á móti að Gunnar víki. Ólafur segir engar þreifingar um nýtt meirihlutasamstarf hafa átt sér stað. Hann vænti þess að meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks starfi áfram enda snúist málatilbúnaður Vinstri grænna og Samfylkingar ekki um að fella meirihlutann. „Málið snýst fyrst og fremst um að við viljum ekki hafa svona spillingu grasserandi í bæjarfélaginu," segir Ólafur. Ljóst sé að farið hafi verið býsna frjálslega með heimildir og fjármuni bæjarfélagsins. Þess vegna sé brýnt að Gunnar axli ábyrgð og víki. Ólafur vill lítið segja til um framhaldið og bendir á að boltinn sé hjá sjálfstæðis- og framsóknarmönnum. Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi kemur saman til fundar í kvöld og þar mun pólitísk framtíð Gunnars og meirihlutans skýrast.
Mest lesið Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Facebook lá niðri Erlent Fleiri fréttir Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Sjá meira