Síminn sagður beita klækjum 20. júní 2009 06:00 Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone, segir Símann ekki bjóða samkeppnishæft verð.
Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone, segir ákvörðun kærunefndar útboðsmála um að stöðva innkaupaferli Ríkiskaupa vegna fjarskiptaþjónustusamnings fyrir Landspítalann ekki taka til þess hvort tilboð Vodafone sé löglegt. „Við viljum árétta að enginn samningur hefur verið gerður á grundvelli útboðsins enda stöðvaðist samningsferlið þegar Síminn kærði málsmeðferð Ríkiskaupa í byrjun júní. Umrædd ákvörðun kærunefndar útboðsmála er heldur ekki endanleg, því nefndin mun taka efnislega afstöðu til kæru Símans síðar þótt hún telji rétt að stöðva innkaupaferlið hjá Ríkiskaupum," segir Hrannar og bendir á að ákvörðun kærunefndarinnar sé bráðabirgðaúrskurður sem nái eingöngu til þeirrar ákvörðunar Ríkiskaupa að framlengja gildistíma tilboða sem bárust. Úrskurðurinn hafi því ekkert að gera með lögmæti tilboðsins frá Vodafone - sem fyrirtækið telji að sjálfsögðu fullkomlega lögmætt. „Það er hins vegar skiljanlegt að Síminn reyni með lagaklækjum að koma keppinautum sínum frá borðinu, því ekki býður hann samkeppnishæft verð. Í þessu tilviki bauð Síminn rúmlega fjörutíu milljónum króna hærra en Vodafone, sem hefur þjónustað Landspítalann í fimm ár án þess að nokkurn tíma hafi borið skugga á það samstarf," segir Hrannar, sem kveður Vodafone nú bíða endanlegs úrskurðar kærunefndarinnar.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Sjá meira