Töldu dótturinni líkt við hross 15. desember 2009 02:30 Þorlákshöfn Árásin átti sér stað í verbúð í Þorlákshöfn.
Mæðgur hafa verið dæmdar til að greiða samtals 240 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir að hafa ráðist á konu í verbúð í Þorlákshöfn. Þá voru þær dæmdar til að greiða fórnarlambinu 130 þúsund krónur í miskabætur. Konan sem mæðgurnar réðust á er systir þeirrar eldri. Erindi þeirra í verbúðina var að jafna sakir við konuna út af póstkorti, sem þær töldu hana hafa sent dótturinni í eineltisskyni og jafnframt til kunningjafólks í Póllandi. Hefði dóttirin fengið póstkort með mynd af hrossum og hefði tilgangurinn augljóslega verið sá að líkja henni við hross. Þegar mæðgurnar komu í verðbúðina upphófust hörð orðaskipti milli þeirra og systur þeirrar eldri. Orð eins og „barnamaskína“ „hóra“ og önnur álíka flugu á milli. Á endanum réðust mæðgurnar á konuna með barsmíðum og spörkum í höfuð og líkama. Fórnarlamb árásarinnar fékk áverkavottorð hjá lækni, þar sem fram kom að hún hefði verið marin og bólgin eftir árásina. Mæðgurnar vildu lítið gera úr því fyrir dómi og sögðu konuna líklega hafa fengið áverkana við að kafa ofan í ruslagáma. Auk þess væri hún alltaf rauð í framan. - jss
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sjá meira