Einar sigraði sitjandi borgarfulltrúa 28. nóvember 2009 11:55
Einar Skúlason, varaþingmaður Framsóknarflokksins, sigraði Óskar Bergsson, sitjandi borgarfulltrúa, í kosningu um oddvitasæti flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Einar hlaut 62% atkvæða á kjörfundi framsóknarmanna sem hófst klukkan tíu í morgun á Hótel Loftleiðum. Einar hlaut 298 atkvæði eða 62% gildra atkvæða og Óskar hlaut 182 atkvæði eða 38%. Auðir og ógildir seðlar voru 8. Í samtali við fréttastofu sagðist Einar vera gríðarlegar þakklátur fyrir þennan mikla stuðning. Hann ætlar að leggja sig allan fram í komandi kosningabaráttu og stefnir á góðan sigur. Alls greiddu 488 atkvæði á kjörfundinum og segir Einar stemninguna á fundinum vera eins og á flokksþingi framsóknarmanna í janúar síðastliðnum þegar grasrót flokksins krafðist endurnýjunar. Framsóknarflokkurinn fékk einn mann kjörinn í borgarstjórnarkosningunum 2006. Óskar tók sæti sem borgarfulltrúi þegar Björn Ingi Hrafnsson baðst lausnar í janúar 2008. Á kjörfundinum verður kosið í sex efstu sæti listans með meirihlutakosningu og í sæti 7 til 12 með prófkjörsleið. Niðurstöður valsins eru bindandi. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Framsóknarfélögunum í Reykjavík. Ef tveir bjóða sig fram er kosið á milli þeirra þannig að sá sem fær fleiri atkvæði hlýtur sætið. Ef þrír eða fleiri bjóða sig fram er kosið milli allra frambjóðenda og ef enginn þeirra hlýtur meira en 50% gildra atkvæða er kosið aftur milli þeirra tveggja sem flest atkvæði hlutu í fyrri umferð. Hlýtur sá sem fær fleiri atkvæði viðkomandi sæti. Þessi aðferð er viðhöfð í sæti 1 til 6. Ef frambjóðandi nær ekki því sæti sem hann sóttist eftir getur hann boðið sig fram í önnur sæti á kjörfundinum. Kosning í 2. sæti listans hefst innan skamms. Í kjöri eru Guðrún Valdimarsdóttir, Salvör Gissurardóttir og Valgerður Sveinsdóttir.
Tengdar fréttir Guðlaugur dregur framboð sitt til baka Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitur Reykjavíkur, hefur dregið framboð sitt í 3. sæti á lista framsóknarmanna í borgarstjórnarkosningunum í vor til baka. Hann er náinn samstarfsfélagi Óskars Bergssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, sem laut í lægra haldi í baráttu við Einar Skúlason um oddvitasætið. 28. nóvember 2009 12:54 Óskar: Úrslitin vonbrigði Óskar Bergsson, formaður borgarráðs og sitjandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir að úrslitin í kosningu um oddvitasæti flokksins séu vonbrigði. Hann ætlar að leggja sitt af mörkum í komandi kosningabaráttu. 28. nóvember 2009 12:21 Talning hafin á kjörfundi framsóknarmanna Kosningu um oddvitasæti framsóknarmanna í komandi borgarstjórnarkosningum lauk á 12 tímanum og er talning hafin. Kjörfundur fer fram á Hótel Loftleiðum og berjast Einar Skúlason, varaþingmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks framsóknarmanna, og Óskar Bergsson, borgarfulltrúi og formaður borgarráðs, um fyrsta sætið. 28. nóvember 2009 11:38 Valgerður sigraði Hall í baráttunni um þriðja sætið Valgerður Sveinsdóttir, lyfjafræðingur, sigraði Hall Magnússon í kosningu um þriðja sætið á lista framsóknarmanna í Reykjavík í kosningunum í maí á næsta ári. Valgerður sigraði með 66% gildra atkvæða en Hallur hlaut 34% atkvæða. 28. nóvember 2009 14:26 Einar og Óskar berjast um oddvitasætið Kjörfundur framsóknarmanna vegna borgarstjórnarkosninganna í vor hefst klukkan tíu á Hótel Loftleiðum. Einar Skúlason, fyrrverandi skrifstofustjóri þingflokks framsóknarmanna, og Óskar Bergsson, borgarfulltrúi, takast á um oddvitasætið. Alls eru 20 frambjóðendur í kjöri. 28. nóvember 2009 09:19 Guðrún skipar annað sætið á eftir Einari Skúlasyni Guðrún Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri SAMFOK, sigraði í kosningu um 2. sætið á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna í maí á næsta ári. 28. nóvember 2009 13:32 Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar eldflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Fleiri fréttir Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Sjá meira
Guðlaugur dregur framboð sitt til baka Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitur Reykjavíkur, hefur dregið framboð sitt í 3. sæti á lista framsóknarmanna í borgarstjórnarkosningunum í vor til baka. Hann er náinn samstarfsfélagi Óskars Bergssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, sem laut í lægra haldi í baráttu við Einar Skúlason um oddvitasætið. 28. nóvember 2009 12:54
Óskar: Úrslitin vonbrigði Óskar Bergsson, formaður borgarráðs og sitjandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir að úrslitin í kosningu um oddvitasæti flokksins séu vonbrigði. Hann ætlar að leggja sitt af mörkum í komandi kosningabaráttu. 28. nóvember 2009 12:21
Talning hafin á kjörfundi framsóknarmanna Kosningu um oddvitasæti framsóknarmanna í komandi borgarstjórnarkosningum lauk á 12 tímanum og er talning hafin. Kjörfundur fer fram á Hótel Loftleiðum og berjast Einar Skúlason, varaþingmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks framsóknarmanna, og Óskar Bergsson, borgarfulltrúi og formaður borgarráðs, um fyrsta sætið. 28. nóvember 2009 11:38
Valgerður sigraði Hall í baráttunni um þriðja sætið Valgerður Sveinsdóttir, lyfjafræðingur, sigraði Hall Magnússon í kosningu um þriðja sætið á lista framsóknarmanna í Reykjavík í kosningunum í maí á næsta ári. Valgerður sigraði með 66% gildra atkvæða en Hallur hlaut 34% atkvæða. 28. nóvember 2009 14:26
Einar og Óskar berjast um oddvitasætið Kjörfundur framsóknarmanna vegna borgarstjórnarkosninganna í vor hefst klukkan tíu á Hótel Loftleiðum. Einar Skúlason, fyrrverandi skrifstofustjóri þingflokks framsóknarmanna, og Óskar Bergsson, borgarfulltrúi, takast á um oddvitasætið. Alls eru 20 frambjóðendur í kjöri. 28. nóvember 2009 09:19
Guðrún skipar annað sætið á eftir Einari Skúlasyni Guðrún Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri SAMFOK, sigraði í kosningu um 2. sætið á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna í maí á næsta ári. 28. nóvember 2009 13:32