Leiðréttingar eru sjónhverfingar 23. desember 2009 14:24
Leiðréttingarleiðir bankanna eru sjónhverfingar að mati Hagsmunasamtaka heimilanna sem hafa skoðað þær ítarlega. Þau kalla því áfram eftir tafarlausum almennum aðgerðum stjórnvalda. Óvissan er mikil um fjármálaumhverfi framtíðar en eftir grandskoðun hafa samtökin sent frá sér greinargerð með samanburði á leiðréttingaleiðum fjögurra banka - Arion, Íslandsbanka, Landsbanka og Frjálsa fjárfestingarbankans - og greiðslujöfnunarleið stjórnvalda. Þar segir að allar leiðirnar lækki greiðslubyrði lána til að byrja með, gallinn á þeim öllum - nema lausn Arion - sé sá að heildargreiðslubyrði yfir lánstímann verður meiri ef lántakar þiggja leiðréttinguna. Það þykir samtökunum furðuleg niðurstaða í ljósi þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi upplýst að stóru bankarnir þrír hafi svigrúm til að lækka greiðslu- og skuldabyrði heimilanna um allt að 44% af verðmæti lánasafnanna. Leiðréttingar bankanna á gengistryggðum lánum eru ásættanlegar til skamms tíma, segja samtökin, en líta ekki vel út þegar heildargreiðslubyrði af 25 ára láni er skoðuð. Samtökin reikna það út að þiggi fólk greiðslujöfnun stjórnvalda verði sú leið langdýrust fyrir skuldara þegar upp er staðið að lánstíma loknum - heildargreiðslubyrði hækki um 180%. Af öðrum leiðum, komi leið Arion banka best út. Þá gefa samtökin leiðréttingum bankanna á verðtryggðum fasteignalánum ekki háa einkunn, leið Íslandsbanka er sögð klén en leið Arion banka geti verið veruleg búbót - fyrir þá sem eru mjög yfirveðsettir. Niðurstaða samtakanna er því að leiðirnir lækki almennt greiðslubyrði tímabundið - gegn því að hækkun vaxta og meira sé borgað til baka á endanum. Samtökin telja að stóru bankarnir þrír eigi að skila öllum afslættinum sem þeir hafi fengið frá gömlu bönkunum - og því eigi þeir að geta veitt 50% afslátt á höfuðstóli gengistryggðra lána en 20% af verðtryggðum. Í fylgiskjali má kynna sér ítarlega greinargerð Hagsmunasamtaka heimilanna.
Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent Einars Ólafssonar minnst í Lúxemborg Innlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Erlent Handtekinn á skemmtistað með þrjú ungmenni Innlent „Ég get sýnt þér leiðina að árangri en það er þitt að fara hana“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Læsi, ESB-leynimakk, Landeyjahöfn og húsnæðismál Innlent Fleiri fréttir Á þriðja hundrað manns æfði viðbrögð við flugslysi „Ég get sýnt þér leiðina að árangri en það er þitt að fara hana“ Læsi, ESB-leynimakk, Landeyjahöfn og húsnæðismál Handtekinn á skemmtistað með þrjú ungmenni Einars Ólafssonar minnst í Lúxemborg „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Sjá meira