Gengu allir á dyr 15. desember 2009 03:00 Málin rædd Fulltrúar nýta sér öll horn ráðstefnuhallarinnar til að ræða sín mál. fréttablaðið/kóp
Fulltrúar Afríkuríkja sýndu í verki að þeim er full alvara með að standa fast á sínu þegar þeir gengu á dyr í stóra salnum í Bella Center. Þá hættu þeir þátttöku í öllum nefndum og ráðum. Aðgerðirnar studdu 135 lönd, þar á meðal öll þróunarríkin, Kína og Indland. Fulltrúarnir sögðu að hin ríkari lönd hefðu engan samningsvilja sýnt og sýndu ekki afstöðu þróunarríkjanna skilning. Samningaviðræður fóru af stað á bak við tjöldin og síðdegis tókst að fá þróunarríkin aftur að samningaborðinu með fullvissu um að alvara byggi að baki viðræðunum. Deilan hefur orðið til þess að ýmsir þjóðarleiðtogar hafa flýtt för sinni til Kaupmannahafnar. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, kemur hingað í dag, tveimur dögum fyrr en áætlað var. Þróunarríkin hafa viljað framlengja ákvæði Kyoto-bókunarinnar frá 1997, en samkvæmt henni þurfa þróaðri ríki að borga sektir fari þau fram úr í útblæstri gróðurhúsalofttegunda, en undanskilur þróunarríkin slíkum gjöldum. Þau benda á að ríkari lönd hafi grætt á menguninni hingað til. Nokkur ríki, til dæmis Bandaríkin, hafa ekki viljað skrifa upp á það, gjöldin verði að ganga jafnt yfir alla. Í raun má skipta viðræðunum hér í tvennt; samkomulag um skiptingu kostnaðar á milli þróunar- og þróaðri ríkja og viðræður um hve mikið eigi að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Hópur sem kallar sig Climate Justice Action hvetur nú alla til að yfirgefa ráðstefnuna 16. desember til að mótmæla yfirgangi ríkari þjóða, hafi ekki tekist að semja þá.
Mest lesið Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Innlent Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Innlent Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Innlent Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Innlent Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Erlent Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Innlent Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Erlent Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Innlent Fleiri fréttir Tvö vilja byggja Fossvogsbrú en bæði yfir áætluðum kostnaði Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Ekki sama manneskjan eftir hörmungarnar á Gasa Skorar á ríkisstjórnina að fjármagna íslenskunám Eggert Benedikt settur forstjóri Hafró Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Rafmagnslaust á Dalvík, Hrísey og nágrenni Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Bjóða Grindvíkingum á seiglunámskeið Fimmtungur getur ekki keypt afmælisgjafir fyrir börnin sín Reyna að bjarga starfseminni á Möltu og slæmar fregnir af makrílveiðinni Bein útsending: Loftslagsdagurinn Bein útsending: Staða launafólks á Íslandi Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Konur og háskólamenntaðir líklegri til að vilja frekari aðgerðir gegn Ísrael Bein útsending: Heilbrigðistæknilausnir og -þjónusta Biskup Íslands heimsækir Úkraínu Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Útköll vegna slagsmála Þurftu að finna lausn á uppskáldaðri hryðjuverkaárás á Íslandi Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Ísland land númer 197 Skiptastjóri þurfi að ákveða hvort hann geri kröfu í dótturfélag Play Fjöldauppsagnir á Keflavíkurflugvelli Gjaldþrotið leiðir til hópuppsagnar og afarkostir Bandaríkjaforseta Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Strandaglópar slaga í tuttugu þúsund Sultuslakir strandaglópar eftir heilsuferð til Split Kallar þjóðaröryggisráð saman Sjá meira