Innlent

Skaðabótamáli „fortíðardraugs“ áfrýjað

Slökkviliðsmaður við störf. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Slökkviliðsmaður við störf. Myndin tengist ekki fréttinni beint.

Bæjarráð Akureyrar samþykkti í dag að áfrýja skaðabótamáli slökkviliðsmanns gegn bænum til Hæstaréttar Íslands. Þá var bæjaryfirvöldum gert að greiða slökkviliðsmanninum 3 milljónir í skaðabætur vegna vanefnda á ráðningasamningi árið 2007.

Maðurinn hafði ráðið sig til slökkviliðsins á Akureyri en áður hafði hann starfað hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Hann seldi húsið sitt í Hafnarfirði í kjölfarið og keypti annað á Akureyri. Þangað fluttu kona hans og börn.

Síðar kom í ljós að slökkviliðsstjórinn vildi ekki ráða hann sökum þess að hann væri „fortíðardraugur".

Í dómnum sem féll í febrúar segir að miskabótakrafa slökkviliðsmannsins væri studd við það að hann hafi átt rétt á því að komið væri fram við hann af virðingu en ekki að hann væri kallaður fortíðardraugur. Þá segir einnig að slíkar fullyrðingar séu órökstuddar og brot á starfsheiðri hans.

Akureyrarbær var í kjölfarið dæmdur til þess að greiða honum 3 milljónir í skaðabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×