Obama varði tillögur sínar um umbætur í heilbrigðismálum Guðjón Helgason skrifar 10. september 2009 12:15 Barack Obama, Bandaríkjaforseti, varði í gærkvöldi tillögur sínar um umbætur í heilbrigðismálum. Mynd/AP
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, varði í gærkvöldi umbætur sínar í heilbrigðismálum fyrir báðum deildum Bandaríkjaþings. Viðbrögð þingmanna voru blendin. Einn viðhafði frammíköll og sagði forsetann ljúga. Ræða Obama í gærkvöldi er sögð hafa verið einhver sú mikilvægasta frá því hann tók við forsetaembættinu í janúar síðastliðnum. Bandaríkjaforseti vildi með ávarpinu kynna fyrir þingi og þjóð áform sín um endurbætur á bandaríska heilbrigðiskerfinu þar sem ekki séu allir með sjúkratryggingu og ekkert allsherjar kerfi sem útvegi þær flestum eða öllum. Obama sagðist ekki vera fyrsti Bandaríkjaforsetinn til að taka þetta mál upp en hann ætlaði að verða sá síðasti. Þingið smíðar nú löggjöf sem báðar þingdeildir greiða síðan atkvæði um og forsetinn síðan staðfestir eða synjar. Í megindráttum vill forsetinn að kostnaður við sjúkratryggingar hjá einkareknum tryggingafélögum minnki, tryggt verði að allir Bandaríkjamenn hafi sjúkratryggingu og þeir geti valið sínar tryggingar sjálfir, þar á meðal tryggingar sem hið opinbera veiti. Repúblíkanar segja opinbert tryggingakerfi skaða hið einkarekna og með opinberum tryggingum falli meiri kostnaður á skattgreiðendur. Auk þess græði ólöglegir innflytjendur á kerfinu. Forsetinn svaraði því til að álögur á skattgreiðendur yrðu ekki auknar Obama sagði tillögur sínar ekki ná til ólöglegra innflytjenda. Það var repúblíkaninn Joe Wilson, þingmaður Suður-Karólínuríkis í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, sem brást illa við og sagði forsetann ljúga. Stjórnmálaskýrendur segja ekki dæmi um slík frammíköll í ræðu Bandaríkjaforseta þar sem gripið sé til svívirðinga. Það sýni hve mikill hiti sé í málinu. Margir stjórnmálaskýrendur segja að forsetinn hefði átt að flytja ræðu sína mánuði fyrr. Sókn hans hafi hugsanlega farið of seint af stað og þingmenn beggja flokka þegar með mótaða skoðun en margir samflokksmenn hans í Demókrataflokknum eru efins um breytingaráformin. Útlit sé því fyrir langa baráttu og mikil hrossakaup áður en greidd verði atkvæði um málið.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira