Borgarbúar áttu fótum fjör að launa 10. september 2009 01:15 Flutningabílar eins og hráviði Sjö lík fundust á þessu bifreiðastæði í gær eftir flóðin miklu sem ekki gerðu boð á undan sér.Nordicphotos/AFP
Að minnsta kosti tuttugu manns létu lífið vegna skyndiflóða í gær í Istanbúl. Alls hafa nærri þrjátíu manns farist í flóðum við norðvesturströnd Tyrklands nú í vikunni. Vegfarendur á fjölfarinni hraðbraut áttu sér einskis ills von þegar vatnið streymdi skyndilega yfir veginn. „Ég greip dóttur mína, fór úr bílnum og átti fótum mínum fjör að launa,“ sagði Mihat Demirata, einn ökumannanna. „Ég er viss um að mörgum tókst ekki að bjarga lífi sínu.“ Flóðin stafa af gríðarlegu úrhelli, því mesta sem orðið hefur í áttatíu ár. Flóðin urðu til þess að tvær ár innan borgarmarkanna flæddu yfir bakka sína. Vatnið í ánum varð of mikið til þess að það kæmist eðlilega leið til sjávar. Allt að tveggja metra djúpt vatn flæddi yfir Ikitelli-verslunarhverfið og hraðbraut sem liggur frá Istanbúl til Grikklands og Búlgaríu. Afleiðingin varð meðal annars sú að leiðin til Ataturk-flugvallarins lokaðist.Á stæði fyrir flutningabifreiðar fundust sjö lík og bifreiðarnar lágu eins og hráviði um allt. Sjö önnur lík fundust í lítilli fólksflutningabifreið fyrir utan vefnaðarvöruverksmiðju í Ikitelli-hverfinu. Þar var um að ræða konur sem voru að mæta til vinnu í verksmiðjunni.- gb
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Barist á hafi úti Erlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Fleiri fréttir Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Sjá meira