Ótrúleg handvömm íslenskra stjórnvalda Gunnar Örn Jónsson skrifar 28. ágúst 2009 15:11 Ólafur Elíasson. Mynd/Valgarður Gíslason „
Við í InDefence erum afar óánægð með vinnubrögð Alþingis varðandi þá fyrirvara sem liggja Icesave samningnum til grundvallar. Við höfum heimildir fyrir því að þrátt fyrir gagnrýni InDefence hópsins um að fyrirvararnir muni ekki halda fyrir breskum dómstólum voru ekki kallaðir til sérfræðingar í breskri lögsögu til að fara yfir þá fyrirvara sem samþykktir voru á Alþingi í dag," segir Ólafur Elíasson, meðlimur InDefence hópsins í samtali við Vísi. Meðlimir InDefence hópsins sátu á nefndarfundum með fjárlaganefnd, utanríkisnefnd og efnahags- og skattanefnd Alþingis til að koma skilaboðum sínum á framfæri. Að sögn Ólafs var tekið mark á þeim athugasemdum sem hópurinn kom á framfæri við nefndirnar á nefndarfundunum en svo virðist sem álit hópsins hafi ekki verið athuguð nánar að þeim fundum loknum í öllum tilvikum. Ólafur segist afar óhress með vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í málinu og segir vinnubrögð hennar hafa verið gífurlega hroðvirknisleg allt frá upphafi þessa máls. „Við gerðurm allt til að lágmarka skaðann á þessu með aðkomu okkar í nokkrum nefndum Alþingis. Við lögðum til tvo lögfræðinga sem aðstoðuðu ríkisstjórnina við að skrifa fyrirvara en það breytti ekki því að frá okkar sjónarhóli var ekki verið að vinna þessa vinnu eins ítarlega og augljóst er að þurfi að gera í svo slíku máli. Allt tal um vönduð vinnubrögð Alþingis hljóta að hljóma eins og brandari þegar engir sérfræðingar í breskum lögum voru látnir lesa fyrirvarana," segir Ólafur. „Undir það síðasta fengum við lögfræðiálit frá Dr. Michael Waibel, sérfræðingi í alþjóðarétti við Cambridge háskóla um fyrirvara Icesave samningsins. Að hans mati eru miklar líkur á því að Bretar séu komnir með rétt til að ganga að eigum ríkisins samkvæmt Icesave samningunum sem eru í raun óbreyttir verði ríkisábyrgðin gefin. Samningarnir veita Bretum og Hollendingum aðfararheimild að eigum ríkisins standi ríkið ekki við skuldbindingar sínar," segir Ólafur. Hann segir að InDefence hópurinn þurfi að hamast í þessu næstu árin. „Við styðjum ekki þessa niðurstöðu Alþingis, hún er ekki sú lausn sem við lögðum til og við munum halda áfram að kynna málstað Íslendinga erlendis varðandi þetta mál," segir Ólafur Elíasson að lokum.
Tengdar fréttir InDefence: Óvíst hvort fyrirvarar hafi gildi InDefence hopurinn hefur eftir sérfræðingi í alþjóðarétti við Cambridge háskóla að hann telji óvíst að fyrirvararnir hafi nokkurt gildi samkvæmt breskum lgöum. Því telur InDefance hópurinn að afgreiðsla málsins með fyrirvörum, feli í sér mikla áhættu fyrir Íslendinga. 21. ágúst 2009 12:28 Lagaprófessor: Fyrirvarar öðlast gildi þegar Bretar samþykkja „Ég skil þá að því leyti að ég myndi vilja hnykkja á þessu," segir Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, um álit InDefence hópsins varðandi Icesave fyrirvarana. InDefence lýsti í morgun áhyggjum af því að fyrirvararnir hefðu hugsanlega ekki gildi fyrir breskum dómstólum. 21. ágúst 2009 15:39 Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri fréttir „Ég elska að vera hér“ Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Sjá meira
InDefence: Óvíst hvort fyrirvarar hafi gildi InDefence hopurinn hefur eftir sérfræðingi í alþjóðarétti við Cambridge háskóla að hann telji óvíst að fyrirvararnir hafi nokkurt gildi samkvæmt breskum lgöum. Því telur InDefance hópurinn að afgreiðsla málsins með fyrirvörum, feli í sér mikla áhættu fyrir Íslendinga. 21. ágúst 2009 12:28
Lagaprófessor: Fyrirvarar öðlast gildi þegar Bretar samþykkja „Ég skil þá að því leyti að ég myndi vilja hnykkja á þessu," segir Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, um álit InDefence hópsins varðandi Icesave fyrirvarana. InDefence lýsti í morgun áhyggjum af því að fyrirvararnir hefðu hugsanlega ekki gildi fyrir breskum dómstólum. 21. ágúst 2009 15:39