Milljarðar í súginn vegna aðgerðaleysis 31. mars 2009 06:30 Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi ríkisendurskoðandi og núverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu.
Tekjutap ríkisins og sveitarfélaga vegna skattsvika hafa verið 44 til 60 milljarðar árið 2008, sé tekið mið af ástandinu 2004 til 2005. Þá kom fram í skýrslu nefndar um skattsvik að tekjutap hins opinbera vegna skattsvika væri 8,5 til 11,5 prósent af heildarskatttekjum. Séu skatttekjur árin 2006 og 2007 skoðaðar einnig má gera ráð fyrir undan-skoti upp á nálægt 200 milljarða síðan skýrslan kom út. Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi ríkisendurskoðandi og núverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, segir í litlu hafa verið farið eftir tillögum nefndarinnar, en auk hans voru í henni þeir Snorri Olsen, tollstjóri í Reykjavík, sem var formaður, og Skúli Eggert Þórðarson, þáverandi skattrannsóknastjóri. Í skýrslunni sagði að breyttar aðstæður í atvinnu- og viðskiptalífi hefðu skapað ný tækifæri til skattsvika. Því leggi nefndin til ýmsar breytingar á lögum til að „koma í veg fyrir að skattalög verði sniðgengin með því að íslenskir skattaðilar nýti sér skattaparadísir og ýmis konar lágskattasvæði til að koma undan tekjum sem sæta eiga skattlagningu hér á landi. Þá þarf að styrkja upplýsingaöflun skattyfirvalda í þessu tilliti". Indriði segir ljóst að þróunin hafi verið þannig síðustu ár að undanskot til skattaskjóla hafi aukist frekar en hitt. Því megi segja að aðgerðaleysi stjórnvalda hafi orðið til þess að menn hafi gengið á lagið og skattsvik af þessu tagi aukist. „Hefði verið farið eftir tillögunum værum við að horfast í augu við mun betri stöðu skattayfirvalda til að kanna málin og aðgangur að upplýsingum væri mun betri. Ég er því ekki í vafa um að staðan væri allt önnur." Fyrir þinginu liggur frumvarp um breytingar á skattalögum og segir Indriði að þar komi fram ýmsar tillögur nefndarinnar, til dæmis um að upplýsingastreymi verði aukið, íslensk móðurfélög veiti upplýsingar um erlend dóttur-félög og CFC-löggjöf, sem kemur í veg fyrir óeðlilegan innflutning skatta frá einu ríki til annars. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í ræðu sinni á landsfundi Samfylkingarinnar að tekið yrði af festu á skattaskjólum og skattsvikum og nefndi skýrsluna í því sambandi. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira