Lífið

Sveppi og Bjarni Ben. á móti hommum

Sveppi og Bjarni Ben eru meðal þeirra sem spila við Styrmi. Alfreð Hauksson fer fyrir hinu samkynhneigða  fótboltafélagi.
Sveppi og Bjarni Ben eru meðal þeirra sem spila við Styrmi. Alfreð Hauksson fer fyrir hinu samkynhneigða fótboltafélagi.

Fótboltafélagið Styrmir stendur fyrir fyrsta alþjóðlega fótboltamóti samkynhneigðra á Íslandi um páskana, Iceland Express Cup 2009.

„Styrmir hefur verið til síðan 2006 og við höfum spilað í London, Kaupmannahöfn og Argentínu,“ segir Alfreð Hauksson formaður Styrmis. „Við vorum meira að segja með í utandeildinni 2007 og vorum tæklaðir og allt. Það var bara gaman að prófa það.“

Alfreð segir mikinn áhuga fyrir alþjóðlega fótboltamótinu. „Það mæta 7-8 erlend lið. London Leftfooters og London Titans hafa þegar skráð sig til leiks. Einnig Hamburg Ball-boys og Rad-baller frá Noregi,“ segir hann. „Svo verða að minnsta kosti tvö íslensk lesbíulið í keppninni. Lez Jungles og KMK (Konur með konum) sem er lið eldri lesbía. Við fyllum svo upp í þetta með eins mörgum útgáfum af Styrmis-liðum og þarf til að ná tólf liðum samtals. Það er til að við getum haft riðla.“

Til að byggja upp spennu fyrir mótið mun Stymir spila við fótboltalið valinkunnra Íslendinga. Sá leikur fer fram í Kórnum í Kópavogi sunnudaginn 8. mars kl. 14. Sveppi er fyrirliði hinna gagnkynhneigðu frægðarmenna. Auk Sveppa eru sjónvarpsstjörnurnar Auddi og Logi Bergmann í liðinu. Einnig leikararnir Gunnar Hansson og Atli Geir og fyrrverandi landsliðsfólkið Guðmundur Torfason, Helena Ólafsdóttir og Guðlaug Jónsdóttir.

Í liðinu eru líka þingmennirnir Steingrímur J. Sigfússon, Lúðvík Bergvinsson, Bjarni Benediktsson og Guðlaugur Þór Þórðarson. „Það var rosa lítið mál að fylla liðið og sérstaklega auðvelt að fá alþingismenn,“ segir Alfreð og hlær. „Það eru að koma kosningar og þeir neita engu þessa dagana.“- drg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.