AGS tortryggir lausn á jöklabréfavanda 31. mars 2009 04:30 Sumir þeirra sem taldir eru til erlendra eigenda krónubréfa eða annarra innistæðna hér á landi gætu í raun verið íslenskir viðskiptamenn í gegnum erlend félög, sagði Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra á Alþingi í gær. Fréttablaðið/Pjetur
Efnahagsmál Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) telja að verði erlendum eigendum jöklabréfa og hliðstæðra eigna á Íslandi boðin skipti á til dæmis erlendum eignum lífeyrissjóða gæti það talist brot á yfirlýsingu íslenskra stjórnvalda til sjóðsins. Þetta er önnur þeirra leiða sem nefndar hafa verið til að losa um eignir erlendra aðila hér á landi til að hægt verði að aflétta gjaldeyris-höftum án þess að gengi krónunnar hrynji, segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. Fulltrúar AGS hafa verið afar tortryggnir á þá leið og telja að með þessu væri verið að taka upp tvöfalt gengi á íslensku krónunni. Í yfirlýsingu íslenskra stjórnvalda til sjóðsins frá 15. nóvember 2008 er því lýst yfir að ekki verði tekið upp tvöfalt gengi. Hin leiðin sem nefnd hefur verið er að bjóða upp á skuldabréf sem hægt verði að skipta í evrur á gjalddaga. Hvorugri leiðinni hefur verið hrint í framkvæmd. Jóhanna S. Bjarnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði viðskiptaráðherra um stöðu jöklabréfa í gær. Spurði hún bæði um þær upphæðir sem væri um að tefla, og hvað væri verið að gera til að koma í veg fyrir gjaldeyrisflótta þegar gjaldeyrishöftunum verður aflétt. „Því miður liggur ekki fyrir hver upphæðin í raun og veru er, enda er í raun og veru stundum dálítið erfitt að greina á milli erlendra og innlendra aðila, því að sumir þeirra sem eru á pappírnum erlendir, eru nú kannski grunsamlega íslenskir þegar nánar er að gáð,“ sagði Gylfi á Alþingi. Í samtali við Fréttablaðið segist hann hafa verið að vísa í eigur erlendra eignarhaldsfélaga í eigu íslenskra aðila. Sennilegast sé þó að meirihluti eignanna sé í raun í eigu erlendra aðila. Það skipti þó ekki höfuðmáli, þar sem líklegt sé að bæði íslenskir og erlendir fjármagnseigendur vilji koma fé sínu úr krónum í evrur. Gylfi segir einu leiðina til að átta sig almennilega á umfanginu að bjóða þessum fjármagnseigendum leið út úr þröngri stöðu og sjá hver áhuginn verði. Svein Harald Øygard seðlabankastjóri sagði í viðtali við Fréttablaðið nýverið að ekki gangi að afnema gjaldeyrishöftin þegar vaxtalækkunarferli Seðlabankans sé komið af stað. Gylfi segir æskilegt að hægt verði að afnema gjaldeyrishöftin sem fyrst, en vill ekki leggja mat á hvort áherslur Seðlabankans séu heppilegar. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Innlent Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Sjá meira