Sjóræningjar hraktir frá borði 19. nóvember 2009 04:30 Maersk Alabama. Öryggisverðir um borð beittu skotvopnum og hávaða til að hrinda árás sjóræningja.fréttablaðið/AP
Sjóræningjar frá Sómalíu réðust í gær á bandaríska flutningaskipið Maersk Alabama, sama skipið og varð fyrir barðinu á sómalískum sjóræningjum fyrir sjö mánuðum. Að þessu sinni tókst öryggisvörðum um borð í skipinu að hrinda árásinni með því að beita skotvopnum og hávaða. Bandarísk eftirlitsflugvél fylgdi skipinu síðan áfram að áfangastað í Keníu. Í apríl síðastliðnum tókst sjóræningjum að halda Richard Philips, skipstjóra Maersk Alabama, í gíslingu í litlum björgunarbát í fimm daga. Skyttur úr úrvalssveitum bandaríska sjóhersins frelsuðu Philips og drápu í leiðinni þrjá sjóræningja. Í gær tókst að frelsa annað skip, Alakrana frá Spáni, úr klóm sjóræningja sem flúðu til lands. Reynt var að stöðva þá á flótta og skotið á þá úr spænskri þyrlu, en þeir komust undan. Í gær skýrðu síðan sjóræningjar frá því að skipstjóri skips frá Norður-Kóreu, sem rænt var á mánudag, hefði látist af skotsárum sem hann hlaut í átökum þegar skipinu var rænt. Bandaríski varaaðmírállinn Bill Gortney hrósar útgerð Maersk Alabama fyrir að hafa ráðið öryggisverði um borð. - gb
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira